Ísland fellur um fjögur sæti í samkeppnishæfni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. maí 2018 18:00 Miðbær Reykjavíkur á sjaldséðum góðviðrisdegi í maí. Vísir/Arnar
Ísland fellur um fjögur sæti á lista IMD viðskiptaháskólans milli ára hvað við kemur samkeppnishæfni ríkja. Ísland situr nú í 24. sæti eða sama sæti og árið 2015. Niðurstaðan er nokkur vonbrigði að mati Viðskiptaráðs Íslands þar sem Ísland hefur skriðið upp listann síðustu fjögur ár.Í efnahagslegri frammistöðu fellur Ísland um 18 sæti og niður í það 57. sæti að þessu sinni. Minni hagvöxtur árið 2017 heldur en 2016 ásamt sterku gengi krónunnar skýrir þá þróun að miklu leyti að mati Viðskiptaráðs.„Skilvirkni hins opinbera minnkar einnig milli ára og fellur Ísland þar úr 8. sæti niður í það sextánda. Þar hefur gengi gjaldmiðilsins einnig áhrif, auk meiri hættu á pólitískum óstöðugleika og að áhrif stöðugleikaframlaga á opinber fjármál nýtur ekki eins sterkt við. Skilvirkni atvinnulífsins batnar lítillega milli ára og situr Ísland nú í 22. sæti en innviðir standa í stað í 17. sæti,“ segir í tilkynningu Viðskiptaráðs.Útkoma annarra ríkjaBandaríkin njóta góðs af kröftugum hagvexti og taka stökkið upp í efsta sætið á kostnað Hong Kong sem er í 2. sæti. Sviss sem var í 2. sæti í fyrra fellur aftur á móti niður í það fimmta og Holland hækkar um eitt sæti upp í það fjórða.Ísland stendur Norðurlöndunum enn nokkuð að baki og eykst bilið milli ára. Danmörk er efst af Norðurlöndunum og hækkar um eitt sæti (6. sæti), Noregur er næst og hækkar um þrjú sæti (8. sæti) en Svíþjóð stendur í stað (9. sæti). Finnland fellur um eitt sæti niður í 16. Sæti og sem fyrr segir er Ísland neðst af Norðurlöndunum í 24. sæti.Í tilefni af úttekt IMD á samkeppnishæfni efnir Viðskiptaráð til blaðamannafundar klukkan 11:00, fimmtudaginn 24. maí í Húsi atvinnulífsins (Kvika, fundarsalur á 1. hæð) þar sem niðurstöðurnar verða kynntar nánar.
Mest lesið „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Fleiri fréttir Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Sjá meira