60 milljón króna tilboð í Hítará Karl Lúðvíksson skrifar 16. apríl 2018 08:31 Hæsta tilboð sem barst í útboð fyrir Hítará var 60 milljónir. Mynd: SVFR
Opnað var fyrir tilboð í Hítará á Mýrum um helgina en alls skiluðu fimm aðilar inn tilboðum í ána. Hítará hefur verið lengi innan banda SVFR en félagið var einn af þeim aðilum sem átti tilboð í ána en voru þó ekki með hæsta boð en það næst hæsta. Hæsta tilboðið kom frá Salmon Fishing Iceland og hljóðaði það uppá 60 milljónir króna. Hítará er ein af vinsælli veiðiám á vesturlandi og veiðin í henni góð en aðeins er veitt á sex stangir í henni. Á síðasta sumri veiddust 779 laxar í ánni en meðalveiðin uppgefin á árunum 1974-2008 er gefin upp 394 laxar á vefnum angling.is en veiðitölur síðustu ára hefur verið góð fyrir utan 2014. Árið 2015 veiddust 1238 laxar og mesta veiðin var árið 2008 þegar það veiddust 1298 laxar. Eftirspurn eftir veiðileyfum hefur í gegnum tíðina verið það góð að áin hefur að mestu verið uppseld á hverju ári. Það sem liggur þó fyrir næsta leigutaka verður að bæta úr aðstöðu veiðimanna en gamla húsið sem hefur verið notað í áratugi er komið til ára sinna og er alveg laust við þau þægindi sem veiðimenn eiga að venjast úr flestum nýrri veiðihúsum landsins. Kannski er það engu að síður sjarminn við aðstöðuna sem á hluta í því að gera ánna jafn vinsæla og hún er en fá veiðihús skarta jafngóðu útsýni úr stofunni eins og þetta hús eins og veiðimenn sem þarna hafa dvalið þekkja.
Ferðamennska á Íslandi Mest lesið Hrútafjarðará löngu uppseld Veiði Veiðibúðin við Lækinn skiptir um eigendur Veiði Norðurá: Veiðimenn búnir að fá sig fullsadda af hækkunum Veiði Kvikmyndahátið fluguveiðimannsins Veiði Fimm ára veiðikona með maríulax í Elliðaánum Veiði Hylurinn er vikulegt hlaðvarp um veiði Veiði Mikil eftirspurn eftir laxveiðileyfum fyrir 2017 Veiði Fín veiði í Kvíslaveitum Veiði Haugur líklega ein vinsælasta fluga sumarsins Veiði Veiðigoðsögnin Völundur Þorsteinn er látinn Veiði