Skoðun

Fólk eins og ég og þú

Sif Jónsdóttir skrifar
Við göngum um Reykjavík, borgina okkar, með stolti og gleði í hjarta yfir því að hér er gott að búa. Við gleðjumst yfir því að hér ríkið friður, tjáningarfrelsi og einstaklingsfrelsi.

Borgina skartar sýnu fegursta á sólardegi með útsýni til Esjunnar, Snæfellsjökuls, Bláfjalla og Keilis. Við njótum þess að ganga um í görðum borgarinnar, Klambratúni, Fossvogsdalnum, Laugardalnum, Elliðárdalnum, Öskjuhlíð og Ægissíðuna.  Útivistarsvæðin sem umkringja borgina eru vinsæl og er Heiðmörk mikil náttúruperla, svæðið hjá Rauðavatni og Úlfarsfellið.  Hægt er að njóta allra þessara svæða daglega án kostnaðar og þau eru í göngufæri við byggð.  Já við erum svo sannarlega lánsöm. Vetur eru harðir hér á landi og er veðrið sannkallað ólíkindatól því það getur verið margbreytilegt á einum degi.  Við höfum vanist því en gestir sem sækja okkur heim eru ekki vanir þessum sviftingum. Við vitum að það vorar og bíðum þess þolinmóð og með langlundargeði, klæðum okkur upp í vetrargallann og njótum vetrarins eins og hann birtist okkur kaldur, harður og umhleypingasamur.

Það er ekki síst í stillum og á sólskinsbjörtum vordögum þegar okkur finnst tilveran fullkomin að það skellur á okkur raunveruleikinn, svifryksmengun, þar sem þess er óskað að við höldum viðkvæmum og börnum inni í dag.  Þetta gerist ekki einu sinni heldur oft og hefur aukist ár frá ári.  Þetta er ekki það sem við viljum heyra sem búum í okkar hreinu og fallegu grænu borg.  Já við viljum sjá Reykjavík sem græna, vistvæna borg alveg eins og okkur er annt um heilbrigði í líkama og sál.  Það er markmið okkar og við sem búum í Reykjavík viljum halda henni þannig.  Þess vegna er fólk eins og ég og þú að týna rusl og  laga umhverfið okkar og annara og koma með ábendingar um það sem betur mætti fara.  Við sjáum lausnir og komum þeim á framfæri. Við vitum að í svifryki er mikið um malbiksagnir m.a. vegna þess að nagladekk tæta upp göturnar margfalt hraðar en önnur dekk. Í dag, 15. apríl, eiga engir bílar að vera á nagladekkjum í Reykjavík og legg ég til að þessi dagur verði færður fram til 30 mars til þess að stytta tímabilið og hvet fólk til að nota ekki úrræðið nagladekk og stuðla þannig að bættu andrúmslofti í borginni.

Höfundur skipar 2. sæti á Höfuðborgarlistanum fyrir sveitastjórnarkosningar 2018.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×