2,5 milljarða króna súrefnis - og köfnunarefnisverksmiðja tekin í notkun Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir skrifar 17. apríl 2018 17:15
ÍSAGA tók í notkun nýja 2,5 milljarða króna súrefnis - og köfnunarefnisverksmiðju í dag. Verksmiðjan er staðsett í Vogum á Vatnsleysuströnd og var það iðnaðar - og viðskiptaráðherra, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, sem tók hana formlega í notkun við hátíðlega athöfn, að viðstöddum bæjaryfirvöldum í Vogum, þingmönnum Suðurkjördæmis og fleiri gestum. Fjárfestingakostnaður vegna verksmiðjunnar er um 2,5 milljarðar, fyrst og fremst í tækjabúnaði. Verksmiðjan framleiðir súrefni og köfnunarefni úr andrúmsloftinu og er ætlað að styðja við íslenskan iðnað og framleiðslu, ásamt því að sjá heilbrigðisþjónustunni áfram fyrir hágæða súrefni. Verksmiðjan nýja er alsjálfvirk og mun henni verða fjarstýrt af starfsfólki sem fylgist með rekstrinum allan sólarhringinn. Enginn mengandi úrgangur eða aukaefni eru sögð fylgja framleiðslunni og eini útblástur verksmiðjunnar er lyktarlaus vatnsgufa. Fyrirtækið starfrækir einnig verksmiðjur við Breiðhöfða í Reykjavík og að Hæðarenda í Grímsnesi. Nýja verksmiðjan leysir hina 40 ára gömlu verksmiðju við Breiðhöfða af og mun aðkastageta þessarar nýju vera 30% meiri, eða 1.200 m³ á klukkustund, og orkunotkunin umtalsvert minni en á Breiðhöfða. Bygging þessarar nýju verksmiðju ÍSAGA ehf., og þýska móðurfélagsins Linde, er fyrsta skrefið í að flytja meginstarfsemi fyrirtækisins í Voga á Vatnsleysuströnd. Staðsetningin í Vogum mun einnig draga umtalsvert úr kolefnisspori ÍSAGA, þar sem um 90% af því fljótandi súrefni sem fyrirtækið framleiðir fer til viðskiptavina sem eru innan við 100 km fjarlægð frá Vogum.
Vogar Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira