Kortleggja hættuna fyrir gerendur í ofbeldismálum Jón Hákon Halldórsson skrifar 19. apríl 2018 06:00 Anna K. Newton. Vísir/ernir
Anna Kristín Newton, sálfræðingur á Fangelsismálastofnun, er formaður starfshóps sem er falið að kortleggja og skilgreina þjónustuþörf fyrir gerendur í ofbeldismálum og þá sem eru í hættu á að fremja ofbeldisbrot. Það var Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, sem skipaði hópinn og gerir ráðherra ráð fyrir að niðurstöðum verði skilað 1. nóvember. Í tilkynningu á vef velferðarráðuneytisins kemur fram að ráðuneytið hefur undanfarin misseri leitt vinnu við gerð aðgerðaáætlunar gegn ofbeldi í samfélaginu með fulltrúum dómsmálaráðherra, félags- og jafnréttismálaráðherra, heilbrigðisráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra. Í því starfi hefur meðal annars verið kallað eftir fjölbreyttari meðferðarúrræðum fyrir gerendur í ofbeldismálum. Í ljósi þessa og umræðunnar sem átt hefur sér stað í samfélaginu um kynbundið og kynferðislegt ofbeldi og áreitni ákvað ráðherra að skipa starfshópinn. Hópnum er ætlað að gera tillögur um viðeigandi úrræði og jafnframt um það hvernig megi efla forvarnir og fræðslu til að koma í veg fyrir ofbeldisbrot. Starfshópurinn skal hafa samráð við velferðarþjónustu sveitarfélaganna og eftir atvikum aðra sérfræðinga á þessu sviði.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Tvær þyrlur sendar og hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs slyss Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Sjá meira