Skoðun

Bætt aðgengi í höfuðborginni

Sif Jónsdóttir skrifar
Kæru borgarbúar! 

Við sem búum í Reykjavík höfum fundið fyrir því að fjöldi bifreiða í umferðinni eykst með hverju ári. Biðraðir á álagstímum og  umferðarþungi á stoðbrautum er orðinn fastur liður hversdagsins. Sú lausn sem okkur hefur verið kynnt í Reykjavík er að leggja Borgarlínu  sem á að vera framtíðarlausn við umferðarálaginu.

Við eigum að skilja bílinn eftir heima og taka Borgalínuna til áfangastaðar  í miðbæ Reykjavíkur. Það er ekki svo  einfalt eins og samfélagið er uppbyggt í dag.  Það að  taka Borgarlínu til og frá vinnu hentar ekki öllum og mörgum hryllir við veðurofsa vetrarins og vilja ekki standa úti í öllum veðrum og bíða eftir næstu ferð.

Samfélagið er uppbyggt þannig að foreldrar þurfa að skutla börnum milli skóla og tómstunda og ef ferðatími til vinnu í bænum er lengri í Borgarlínu en á eigin bil, þá fer fólk á bílnum. Nú hafa verið nokkrar kynningar á þessu verkefni á vegum Reyjkavíkurborgar, þetta er stórt verkefni og kostnaðurinn er frekar óljós.  Nefndar hafa verið tölur á bilinu 70-100 milljarða, en ég hef ekki sé neina nákvæma útlistun á þessu verkefni, hvað þá verk- eða kostnaðaráætlun.  Í ljósi þess að aðeins lítill hluti Reykvíkinga notar strætó í dag þá er kostnaðurinn það mikill að hann þarfnast nánari útlistunar.

Framkvæmdin eins og hún er kynnt fyrir okkur borgarbúum  er að  grafa upp Miklubrautina og setja í stokk. Færa á umferðina í stokkinn og losa íbúana við umferðarálagið.  Nú þegar er umferðin inn í borgina það mikil að hún er ólíðandi á álagstímum ásamt menguninni sem henni fylgir.

Ef það á að grafa upp Miklubrautina þá þarf að beina umferðinni annað.  Það eru væntanlega Bústaðavegur, Suðurlandsbraut og Sæbrautin.  Nú þegar er álagið mikið á þessum vegum og erfitt að sjá að á meðan verið er að grafa upp Miklubrautina þá sé greið umferð um þessar vegi.   Síðan þyfti að leiða umferðina í gegnum smáíbúðahverfin og getur það orðið mikið álag fyrir íbúana því uppgröftur á Miklubraut getur tekið nokkur ár með þeim vinnuvélum sem þarf til að grafa og vörubílum til að flytja burt jarðveginn. Uppgröfur Miklubrautar er því mikið jarðvegsrask til lengri tíma og breytir allri aðkomu að borginni.

Við í Höfuðborgarlistanum sjáum mikilvægi þess að létta umferðinni af stoðvegum borgarinnar og leita annara lausna.  Við höfum horft til þeirrar staðreyndar að mikil uppbygging mun eiga sér stað í Grafarvogi, Grafarholti og á Kjalarnesi á næstu árum í framhaldi af þéttingu miðborgarinnar.

Umferðarþungi í bæinn mun ekki minnka og að loka Miklubraut í nokkur ár meðan verið að leggja hana í stokk setur vegakerfið í borginni í uppnám.  Þess vegna höfum við horft til þess að byggja Sundabrautina frá Kjalarnesi til Reykjavíkur með tengingu við Grafarvog. Þannig tengjum við Kjalarnesið og Grafarvog við miðbæinn og það mun minnka álag á veginn frá Ártúnsholti að gatnamótunum við Breiðholtsbraut, einnig mun það minnka álag á gatnamótunum við Grensásveg og áfram inn í borgina. 

Sundabrautin er leið til að létta á núverandi álagi og beina þeim sem ætla í miðbæinn frá Kjalarnesi, Grafarvogi og Grafarholti  á sem stystum tíma inn í borgina og án þess að keyra þurfi í  gegnum alla borgina.  Við teljum Sundabrautina vera sú lausn sem er minnsta álag fyrir Reykjavíkurbúa og þá er ekki grafið í borginni heldur fer vinnan  fram meðfram borginni og samhliða því munu borgarbúar losna við það álag og áreiti sem uppgröfur eftir allri Miklubrautinni er.

Höfundur skipar 2. sæti á Höfuðborgarlistanum.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×