Vegir víða í slæmu ástandi eftir veðurofsann Stefán Ó. Jónsson skrifar 22. febrúar 2018 06:52 Nú er rétt að vera vakandi við aksturinn. VÍSIR/GVA
Vegagerðin varar við margvíslegum hættum sem ökumenn gætu rekið sig á við akstur í dag. Slitlag vega sé til að mynda víða illa farið eftir veðurfarið sem gengið hefur yfir að undanförnu. Vegagerðin biður vegfarendur því að sýna sérstaka aðgát og haga akstri með tilliti til ástands vega. Þá flæðir vatn yfir veg á þremur stöðum í sunnanverðum Fáskrúðsfirði og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og fara varlega. Ófært er að sama skapi innst á Hvítársíðuvegi, við brúna yfir Norðlingafljót, þar sem vatn flæðir yfir veg. Vegurinn í Álftafirði, milli Djúpavogs og Hafnar, er í sundur en þar er unnið að viðgerð og Þingskálavegur er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla. Ökumenn sem eiga leið um Hvalnesskriður ættu einnig að fara varlega. Vegna mikillar úrkomu hefur verið töluvert grjóthrun á þeim slóðum og því rétt að fara að öllu með gát. Um færð og aðstæður á vegum segir á vef Vegagerðarinnar: Hálkublettir eru á Reykjanesbraut og Höfuðborgarsvæðinu en á Suðurlandi er víða snjóþekja.Á Vesturlandi er snjóþekja á flestum leiðum en þæfingur á Holtavörðuheiði og Fróðárheiði.Snjóþekja, hálka eða hálkublettir eru á Vestfjörðum.Á Norðurlandi vestra er hálka eða snjóþekja á vegum en á Norðausturlandi og Austurlandi er víðast greiðfært en einhverjir hálkublettir á fjallvegum. Það er einnig að mestu greiðfært með suðausturströndinni.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Sjá meira