„Það bara snappaði eitthvað inn í mér,“ segir Ólöf í viðtali við Kjarnann. Þetta sé vanvirðing við það sem hún þurfti að ganga í gegnum. Þá hafi hún upplifað það sem sjálfstætt brot þegar miskabæturnar hafi ekki verið greiddar út á sínum tíma. Hún þurfti að leita til annars lögmanns til að ganga á eftir því að fá bæturnar greiddar.
Um er að ræða annað mál en keimlíkt því sem fjallað hefur verið um í kvöldfréttum Stöðvar 2 undanfarna daga. Mál Ólafar er frá 2005 en árið 2008 var Sif kærð til Lögmannafélagsins fyrir að greiða ekki barni sem hún starfaði sem réttargæslumaður fyrir miskabætur.
Vísir fjallaði ítarlega um málið á sínum tíma en aldrei fengust svör við því hvort Sif hefði greitt bæturnar af fjárvörslureikningi eða persónulegum reikningi.

Ólöf Rún segir sögu sína í viðtali við Kjarnann. Hún hafi alist upp í Stykkishólmi þar sem kennari hennar beitti hana kynferðislegu ofbeldi. Hann hafi þjálfað hana í íþróttum en upphaf samskipta voru SMS skilaboð til hennar sem hann sagði hafa átt að rata á vin sinn. Í framhaldinu hafi samband þeirra orðið kynferðislegt.
Þegar til stóð að gera kennarann að umsjónarkennara í bekk Ólafar og fara með bekkinn í utanlandsferð kom í ljós að kennarinn hafði átt í óeðlilegum samskiptum við fleiri en stúlkur en Ólöfu.
„Við fórum og töluðum við skólastjórann og síðan við foreldra okkar. Þau lögðu fram kæru fyrir okkar hönd,“ segir Ólöf við Kjarnann.
Erfiðir tímar fóru í hönd fyrir stúlkurnar sem kennarinn braut á.
„Stykkishólmur er lítill bær, við fengum stundum ekki afgreiðslu, það var bloggað um okkur, þetta var á þeim tíma sem allir voru að blogga, alls konar nafnlaus komment og sms. Þetta var ógeð.“
Maðurinn hlaut fimm mánaða dóm, að mestu skilorðsbundinn, fyrir brot sín auk þess að vera dæmdur til að greiða Ólöfu og annari stúlku miskabætur. Ólöf segir reiði sína hafa verið það mikla að hún hafi ekki viljað bætur, þær hafi þó verið staðfesting á því að brotin hafi átt sér stað.

Líkt og í því máli sem Stöð 2 fjallaði um var Ólöf ekki fjárráða þegar dómur féll. Foreldrar þeirra þurftu því að sækja málið fyrir þeirra hönd en miskabætur bárust ekki frá réttargæslumanninum, Sif Konráðsdóttur. Þurfti að leita til annars lögmanns til að krefjast bótanna sem skiluðu sér að lokum frá Sif.
Í hinu málinu var Sif kærð til Lögmannafélagsins en kæran dregin til baka þegar hún hafði greitt bæturnar.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfisráðherra staðfesti í viðtali við fréttastofu á laugardag að hann hefði vitað af því máli áður en Sif var ráðin til starfa.
„Við fórum yfir þetta saman og bæði eins og sjá má á fréttinni og eins það sem hún sagði við mig, fullvissaði hún mig um það að þarna væri mál sem var gengið frá á sínum tíma,“ segir Guðmundur Ingi.
Hann sagði leiðinlegt ef þetta þýddi að málið gæti ýft upp tilfinningar hjá brotaþola. Hann teldi að Sif hefði greitt peningana út af fjárvörslureikningum, hann vissi ekki betur en hefði heimildir fyrir því.
„Já, ég hef orð fyrir því en það er sjálfsagt hægt að skoða það og komast að því. Það var hennar vinur og félagi og samstarfsmaður til margra ára sem gekk frá þessu máli eins og kemur fram í fréttinni 2008.“
Sif nyti trausts í starfi.