Fangageymslur nánast fullar eftir nóttina Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar 18. febrúar 2018 09:41 Lögreglan hafði í nógu að snúast í nótt. Vísir/Vilhelm
Erilsöm nótt að baki hjá Lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu. Fangageymslur eru nánast fullar vegna mála frá því í gærkvöldi og í nótt. Alls voru höfð afskipti af 5 ökumönnum vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis, og af 6 ökumönnum vegna gruns um akstur undir áhrifum annarra fíkniefna. Auk þess var skemmtistað í efri byggðum Reykjavíkur lokað þar sem einhverjir af gestum staðarins voru undir aldri. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu í morgun. Um hálf eitt í nótt kom ökumaður upp um sig með því að fara yfir móti rauðu ljósi og var stöðvaður vegna gruns um ölvun við akstur. Rétt fyrir eitt var ökumaður stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Bæði hann og farþegi í bílnum voru með fíkniefni á sér og eggvopn fannst í bifreiðinni. Klukkan 5 í morgun var svo ökumaður vistaður í fangageymslu vegna gruns um ölvun við akstur og aðildar að umferðaóhappi á Hringbraut. 3 aðrir voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis og 5 vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Af þeim síðarnefndu var einn aðili að umferðaróhappi, með fíkniefni á sér og hótaði lögreglumönnum. Annar var á röngum skráningarnúmerum, með fíkniefni á sér og verður einnig kærður fyrir vopnalagabrot. Skemmtistað var svo lokað vegna þess að nokkrir gesta hans voru undir aldri. Staðurinn er í efri byggðum Reykjavíkur og er þetta ekki í fyrsta skipti sem lögregla grípur til þessara aðgerða gagnvart honum.
Lögreglumál Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira