„Íslenski“ Daninn gerði meira gegn Evrópumeisturunum en á öllu EM þar á undan Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. janúar 2018 15:30 Hans Óttar Lindberg. Vísir/Getty
Hornamaðurinn Hans Óttar Lindberg á íslenska foreldra en hefur alla tíð spilað með danska handboltalandsliðinu. Í gær sýndi hann mikilvægi sitt í sigri Dana á Evrópumeisturum Þýskalands. Danir eru í góðri stöðu í milliriðli sínum á EM í Króatíu eftir 26-25 sigur á Þýskalandi í gær en Danir hafa þar með sex stig þegar þeir eiga einn leik eftir. Danska liðið fékk níu mörk frá Hans Óttar Lindberg í leiknum í gær eða tveimur mörkum meira en hann hafði skorað samanlagt í fyrstu fjórum leikjum liðsins á mótinu. Fyrir leikinn á móti Evrópumeisturum Þýskalands þá hafði Hans skorað „aðeins“ 7 mörk úr 10 skotum í fjórum leikjum eða undir tvö mörk að meðaltali í leik. Í gær skoraði hann 9 mörk úr aðeins 11 skotum og var markahæsti leikmaður danska liðsins.Så du ikke Danmark slå Tyskland, så kan du genopleve den her. P.S. Det er nervepirrende og #ikkeforamatører#hndbld#håndboldhttps://t.co/xrDT70Gvz7pic.twitter.com/yAwd38DU7I — DanskHåndboldForbund (@dhf_haandbold) January 21, 2018 Hans Óttar skoraði þrjú af fyrstu fimm mörkum danska liðsins í leiknum, hann skoraði þrjú dönsk mörk í röð þegar liðið janfaði metin í 15-15 og þá skoraði hann síðustu tvö mörk Dana í leiknum. „Íslenski“ Daninn var líka valinn maður leiksins í leikslok enda var það án vafa hann sem gerði útslagið gegn Evrópumeisturunum og fór með því því langt með að koma danska landsliðinu í undanúrslit keppninnar.
EM 2018 í handbolta Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira