Reiðialda í Ástralíu eftir að kóalabjörn fannst skrúfaður fastur Atli Ísleifsson skrifar 11. janúar 2018 14:09 Kóalabjörninn hafði verið skrúfaður fastur. Koala Rescue Queensland (KRQ)
Mikil reiðialda gengur nú yfir Ástralíu eftir að dauður kóalabjörn fannst skrúfaður fastur á stólpa á áningarstað í skógi nálægt bænum Gympie, um 170 kílómetrum norður af Brisbane. „Hvað er að þessu samfélagi? Þetta er ógeðslegt og mér verður óglatt,“ segir Murray Chambers, forseti dýraverndunarsamtakanna Koala Rescue Queensland (KRQ). BBC greinir frá málinu. Tilkynning um kóalabjörninn barst samtökunum og kemur fram að hann hafi verið dauður þegar hann fannst. Sydney Herald segir frá því að rannsókn hafi einnig leitt í ljós að dýrið hafi verið dautt þegar það var skrúfað fast á staurinn. Samtökin sögðu frá málinu á Facebook-síðu sinni og hafa þúsundir netverja lýst yfir hneykslun sinni. Kóalabjörnum hefur fækkað á síðustu árum, meðal annars vegna sjúkdóma, árásum hunda og skógarelda. Áströlsk yfirvöld áætluðu að um 330 þúsund birnir hafi verið til í landinu árið 2012.
Dýr Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Innlent Fleiri fréttir Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Sjá meira