Ekkert fær Barcelona stöðvað í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta þessa dagana og Real Betis reyndist ekki mikil fyrirstaða í kvöld.
Leikurinn var þó markalaus allt þar til á 59.mínútu þegar Ivan Rakitic braut ísinn.
Í kjölfarið opnuðust flóðgáttir sem þeir Luis Suarez og Lionel Messi nýttu sér til að setja tvö mörk hvor. Lokatölur 0-5 fyrir Barcelona sem er í toppmálum í efsta sæti deildarinnar.
Barcelona er taplaust í deildinni og hefur nú ellefu stiga forystu á Atletico Madrid sem er í öðru sæti deildarinnar.
Börsungar rúlluðu yfir Betis á síðasta hálftímanum
