Dagur: Ég hefði sennilega fengið brottvísun Benedikt Grétarsson skrifar 3. janúar 2018 22:24 Dagur Sigurðsson í Laugardalshöll í kvöld. Vísir/Eyþór
Dagur Sigurðsson, þjálfari japanska landsliðsins í handbolta, horfði upp á íslenska landliðið taka það japanska í kennslustund í Laugardalshöllinni í kvöld. „Ég átti von á því að við gætum byrjað þennan leik aðeins betur. Við réðum bara ekki við verkefnið og kraftinn í íslenska liðinu. Menn fóru í örvæntingu að taka erfið skot sem Bjöggi bara les í markinu og kemur svo boltanum fram í hraðupphlaup. Þetta var í raun það versta sem gat gerst í byrjun leiks,“ sagði Dagur Sigurðsson þjálfari Japans eftir stórt tap gegn Íslandi . Seinni hálfleikurinn var svo bara á pari við það sem ég hélt að þetta yrði en þá var þetta auðvitað bara tapaður leikur. Kannski fór Ísland aðeins af bensíngjöfinni í seinni hálfleik en kannski náðum við bara aðeins að bæta í okkar leik.“ „Sóknarleikurinn var miklu betri í seinni hálfleik og við náðum að hlaupa nokkur hraðupphlaup. Fyrri hálfleikurinn var bara högg fyrir mina menn sem voru staddir í aðstæðum sem þeir bara réðu ekki við,“ bætti Dagur við. Japan mætir úrvalsliði Íslands annað kvöld, þar sem Ísland teflir fram leikmönnum úr Olísdeildinni. „Við þurfum bara að bæta okkar leik og verða þéttari. Við höfum verið of rokkandi og við þurfum að finna einhverskonar stöðugleika.“ En er þjálfarinn ánægður með hugarfarið hjá sínum mönnum? „Já já, ég er svo sem ánægður með hugarfarið. Það eru allir að vilja gerðir en það er samt svolítið skrýtið í svona leik að fá varla gult spjald þegar verið er að valta yfir þig. Ég er hræddur um að ég sjálfur hefði jafnvel fengið 2 mínútur í þessum aðstæðum sem leikmaður,“ sagði Dagur brosandi að lokum.
Íslenski handboltinn Handbolti Mest lesið Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Íslenski boltinn Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Fótbolti Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ Handbolti „Mættum til leiks í seinni hálfleik“ Sport Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Fótbolti Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum Fótbolti FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Handbolti Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Fótbolti Fleiri fréttir Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum Sjá meira