Flughálka getur myndast á vegum og gangstéttum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 21. desember 2017 08:09 Það er um að gera að fara varlega í hálkunni. vísir/ernir
Veðurstofan bendir vegfarendum á að flughálka getur myndast næsta sólarhringinn þegar rigning fellur á kalda jörð eða klakabunka. Varhugaverðar aðstæður geta því myndast á vegum og gangstéttum að því er fram kemur í athugasemd veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Þar segir jafnframt að um vestanvert landið megi áfram búast við snörpum éljahryðjum með takmörkuðu skyggni. Í kvöld mun svo hvessa af suðaustri með rigningu á láglendi og hlýnandi veðri, fyrst um suðvestanvert landið um miðnætti en svo um allt land í nótt. Auk þess sem mikil hálka getur myndast er rétt að hafa í huga að líklega mun snjóa á fjallvegum í fyrstu með erfiðu færi og lélegu skyggni þegar rignir í nýjan snjó.Veðurhorfur á landinu í dag og næstu daga: Suðvestan 10-15 og snarpar éljahryðjur vestan til fram undir hádegi annars yfirleitt hægari og úrkomulítið. Hiti í kringum frostmark. Dregur úr vindi og éljum eftir hádegi. Gengur í hlýnandi suðaustanátt, 10-18 með rigningu en slyddu eða snjókomu til fjalla um miðnætti, fyrst SV-til. Lægir í fyrramálið og dregur úr úrkomu en snýst aftur í suðvestan 5-13 fyrir hádegi. Þurrt að kalla í fyrstu og léttir til austan til en skúrir og síðar él vestan til þegar líður á daginn.Á föstudag: Sunnan og suðaustan 13-18 m/s og rigning víðast hvar og talsverð um landið sunnanvert. Snýst í suðvestan 5-13 síðdegis með slyddu- og síðan snjóéljum, en rofar til um landið austanvert. Hiti 2 til 7 stig en kólnar niður undir frostmark um kvöldið.Á laugardag (Þorláksmessa): Suðvestan 5-10 m/s með éljum vestantil, en úrkomulítið um landið austanvert. Hiti víða í kringum frostmark. Snýst í vaxandi austanátt með norðurströndinni um kvöldið með snjókomu eða éljum og kólnandi veðri.Á sunnudag (aðfangadagur jóla): Norðaustan 10-15 NV-til, annars 5-13 m/s. Snjókoma norðan og austan til, annars él, en úrkomulítið suðvestanlands síðdegis. Frost 0 til 5 stig, en fer kólnandi með kvöldinu.Á mánudag (jóladagur): Norðaustan 8-15 m/s með éljum, en úrkomulítið suðvestanlands. Kalt í veðri.Á þriðjudag (annar í jólum) og miðvikudag: Norðan og norðaustan 8-15 m/s. Él víða norðan og austantil en bjartviðri sunnan jökla. Frost 2 til 12 stig.
Veður Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira