Ástralskur kafbátur fundinn eftir 103 ára leit Atli Ísleifsson skrifar 21. desember 2017 13:54 Kafbáturinn, HMAS AE-1, var fyrsti kafbátur bandamanna í fyrri heimsstyrjöldinni sem sökk. Vísir/AFP
Brak fyrsta kafbáts ástralska hersins er loks fundið á hafsbotni, 103 árum eftir að báturinn sökk í fyrri heimsstyrjöldinni. Kafbáturinn, HMAS AE-1, var fyrsti kafbátur bandamanna í fyrri heimsstyrjöldinni sem sökk , þann 14. september 1914. Báturinn fannst undan strönd Rabaul á Papúa Nýju-Gíneu, en í honum voru 35 breskir og ástralskir áhafnarmeðlimir. Alls hafa þrettán leiðangrar verið gerðir út til að leita að brakinu, en lengi hefur verið velt vöngum yfir hver örlög kafbátsins hafi verið. Marise Payne, varnarmálaráðherra Ástralíu, segir fundinn einn þann merkasta í siglingasögu Ástralíu. Leitarmenn notuðust við sérstakan neðansjávardróna sem kafaði um fjörutíu metrum frá hafsbotni í leit að bátnum. Hann fannst loks á um þrjú hundruð metra dýpi. Ekki eru áætlanir um að ná bátnum upp af hafsbotni að svo stöddu, en til stendur að rannsaka hvað hafi orðið til þess að hann sökk.
Eyjaálfa Fornminjar Papúa Nýja-Gínea Vísindi Mest lesið „Erum við að fara að deyja?“ Innlent Dró sér fé sem gjaldkeri framboðsins Innlent Hallast að því að þetta sé einbeittur brotavilji Innlent Með um 2,8 milljónir í laun sem bæjarstjóri Innlent Óvenjuleg fley undan ströndum Reykjavíkur Innlent Íslenskur ofurjeppi á leið í framleiðslu Innlent Repúblikanar unnu kjördæmastríðið Erlent Nýr bæjarstjóri fær rúmar 2,5 milljónir á mánuði Innlent Réttmæt reiði vegna ofurkjara kjörinna fulltrúa og embættismanna Innlent Mogginn afþakkar framlag Dags B. Innlent Fleiri fréttir Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður „Menningarleg hnignun“: Bandaríkjastjórn skýtur á Breta vegna Nowak Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Segir Kúbu næsta á eftir Íran Repúblikanar unnu kjördæmastríðið „Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði“ Hezbollah harðneitar samkomulagi Ísraels og Líbanons Höfuðpaur í Foxtrot hafi skipulagt sprengju- og skotárásir í Noregi Pelley látinn fjúka og óvissa uppi um framtíð 60 mínútna Maður sem tók tíu í gíslingu í Kaliforníu skotinn til bana Týndur í sex daga en komst einn niður af Everest Taívanar líta til Úkraínu og Íran Albanir mótmæla harðlega fyrirhugaðri milljarðamæringaparadís Trump verður að leita samþykkis þingsins fyrir aðgerðum í Íran Samþykkja að koma á vopnahléi Vilja banna rússneska túrista Árásir á Pétursborg á fyrsta degi fjárfestaráðstefnu Pútíns Sami flugmaðurinn skotinn niður yfir Íran og yfir Kúveit Konur meirihluti ráðherra í fyrsta sinn í sögu Danmerkur Mótmæli og átök vegna dauða Henry Nowak Gerðu árásir á eyju í Hormússundi í nótt „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Steinsofandi þegar drunurnar riðu yfir: „Er þetta kjarnorkusprengja?“ Sundrung í Bretlandi vegna viðbragða lögreglu við drápi á ungmenni Fjarlægja mælitæki sem fylgist með AMOC nærri Íslandi Frítt til tannlæknis, skattalækkanir og gamall stórhátíðardagur endurvakinn Nýr El niño gæti orðið sá sterkasti sem sögur fara af Sjá meira