Jólagjöfin sem hitti í mark var Nokia 3310 Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 27. desember 2017 09:30 Guðfinnur Einarsson með gjöf gjafanna þessi jólin, Nokia 3310 farsímann.
Aðeins eitt var á óskalista Guðfinns Einarssonar, Bolvíkings og liðsmanns Karlakórsins Esju, þessi jólin. Nokia 3310 sími en hugmyndin kviknaði eftir óvæntan hitting í Kringlunni sökum snjallsímaleysis gamals kunningja. „Ég vann hjá Símanum Kringlunni á yngri árunum, á gullaldartíma gamla Nokia 3310. Þá keyptu nánast allir þennan síma enda langbestu kaupin í honum. Einhverju síðar kom svo delúx útáfan, Nokia 3410 sem var með lithium rafhlöðu. Þá vorum við sko að tala saman!.... Lengi!“ segir Guðfinnur spurður um tengsl sín við símann. Græjuna sem var á hverju heimili fyrir fimmtán árum en fáir hafa séð síðan Apple og Samsung tóku yfir markaðinn. Það gæti þó breyst eftir að ákveðið var að framleiða símann á nýjan leik og er hann því fáanlegur hverjum sem vill í dag. „Fyrir nokkrum vikum hitti ég félaga minn, en sá hafði stuttu áður tapað iPhone símanum sínum. Hann sat á fjölförnum stað og var að bíða eftir fjölskyldunni. Hann sat uppréttur og virti fyrir sér umhverfið, en í kringum hann grúfði fólk sig yfir snjallsímaskjái. Sem er líklega eina ástæða þess að við sáum hvor annan,“ útskýrir Guðfinnur. Í óspurðum fréttum tók vinur hans upp glænýja Nokia 3310 símann sem hann hafði keypt sér. „Hann lýsti svo fyrir mér útópískum raun-veruleika, sem var samt eitthvað svo kunnuglegur frá því fyrir ekkert svo löngu síðan. Og benti svo á rafhlöðumerkið sem stóð í 30% á fjórða eða fimmta degi.“ Guðfinnur segist vera orðinn mun háðari snjallsímanum en hann langi til að vera. Snake í Nokia 3310 símanum ásamt gjaldeyri fyrir ferðalag vestur um haf á nýju ári.Guðfinnur„Svo þegar kom að þessu ómögulega verkefni, velja jólafjöf fyrir fullorðna, þá var Nokia 3310 sími það eina sem ég óskaði mér. Það var því mjög ánægjulegt að sjá hann koma upp úr einum pakkanum.“ Systir Guðfinns og mágur voru gleðigjafarnir sem gáfu honum símann. Tækið uppfyllir allar hans væntingar. „Hann er lítill, fisléttur og passar vel í alla vasa. Hann er þess vegna hin fullkomna græja í sparifötin fyrir jólaboðin. Hann kemur með einhverjum internet möguleikum sem ég ætla að forðast að kynna mér, en horfi frekar á þessa helstu aldamótarfídusa. Þar trónir Snake auðvitað á toppnum.“ Það hafi tekið eina til tvær tilraunir að rifja upp reglurnar en eftir það hafi vöðvaminnið tekið við. „Ég er pottþétt orðinn bestur í hverfinu,“ grínast Guðfinnur. „Það var líka gríðarleg nostalgia að nota takkaborðið til þess að senda fyrsta sms-ið.“ Hann efast um að nýi síminn eigi eftir að leysa snjallsímann alveg af hólmi. „En þetta verður til þess að hann fær verðskuldaða pásu af og til. Svo er þetta auðvitað eini síminn sem kom upp úr pökkunum þessi jólin sem fólk mun í alvörunni vilja fá að sjá og prófa.“ Hann lofar fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum að það sé laust við flugeldamyndir þessi áramótin. „En ég verð heldur ekki að berjast um hleðslutækið upp úr Skaupi.“Veistu um skemmtilegar sögur af jólagjöfum þetta árið? Segðu okkur söguna í ummælakerfinu hér að neðan eða sendu okkur línu á ritstjorn@visir.is.
Jól Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Var þetta einhver skets?“ Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira