Félag Eyþórs Arnalds kaupir Whales of Iceland hvalasýninguna Birgir Olgeirsson skrifar 10. desember 2017 21:31 Whales of Iceland er stærsta hvalasýning Evrópu og þar býðst gestum að fræðast um hvali innan um líkön af hvölum í fullri stærð. Vísir/Vilhelm
Eignarhaldsfélag Special tours hefur keypt Whales of Iceland sem rekur hvalasýningu á Grandanum, og verða fyrirtækin hér eftir rekin sem systurfélög. Félögin munu sameina krafta sína og veita viðskiptavinum sínum betri þjónustu og aukna upplifun í tengslum við hvalaskoðun og aðra afþreyingu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Special Tours. Þar segir að Special tours sé þjónustu- og markaðsfyrirtæki í ferðaþjónustu sem leggur áherslu á siglingar í afþreyingarskyni allt árið um kring. Félagið gerir út frá Gömlu höfninni í Reykjavík, sem er eitt vinsælasta svæði meðal ferðamanna í borginni, og býður meðal annars upp á hvalaskoðunarferðir, norðurljósaferðir á sjó, lundaskoðunarferðir og sjóstangaveiði. Félagið, sem á 20 ára rekstrarsögu, hefur vaxið mikið undanfarin ár og sagt vinna stöðugt að því að bæta þjónustu sína og upplifun viðskiptavina.Eyþór Arnalds.Vísir/ErnirDótturfélag Special tours opnaði nýverið kaffihús og bistro við Gömlu höfnina undir merkjum Reykjavík Röst Bistro þar sem boðið er upp á gæða kaffi, áfenga drykki og léttar veitingar frá morgni til kvölds. Í tilkynningunni kemur fram að Special tours hafi aukið vöruframboð og styrkt bátaflota sinn á undanförnum misserum. Árið 2016 keypti félagið skipið Lilju, 189 farþega útsýnisskip með mikinn ganghraða en félagið mun einnig taka við nýjum hraðskreiðum RIB bát fyrir áramót sem mun hefja siglingar vorið 2018. Whales of Iceland er stærsta hvalasýning Evrópu og þar býðst gestum að fræðast um hvali innan um líkön af hvölum í fullri stærð. Sýningin var opnuð árið 2015 og hefur notið mikilla vinsælda jafnt meðal Íslendinga sem erlendra ferðamanna. Á sýningunni er boðið upp á leiðsögn þar sem gestum er gerð grein fyrir mismunandi tegundum hvala sem sést hafa við Ísland og sérkennum hverrar tegundar. Sýningin býður upp á gagnvirkt sýningarefni og geta gestir jafnframt skoðað lífríki sjávar í sýndarveruleika. Whales of Iceland var að fullu í eigu ITF I, sjóðs í stýringu Landsbréfa. Eftir viðskiptin verður sjóðurinn minnihlutaeigandi í eignarhaldsfélagi Special tours en Eyþór L. Arnalds áfram meirihlutaeigandi í gegnum fjárfestingarfélag sitt.
Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Sjá meira