Ráða verktaka með vinnuvélar til eyðingar lúpínu Sveinn Arnarsson skrifar 16. desember 2017 07:00 Það má með sanni segja að lúpína kljúfi þjóðina í tvennt. Annaðhvort er hún hin mesta plága eða gjöful landgræðsluplanta. vísir/Ernir
Verktaki með öflug verkfæri verður fenginn til að útrýma skógarkerfli og lúpínu næsta sumar í landi Mosfellsbæjar. Er talið að plönturnar ógni líffræðilegri fjölbreytni á viðkvæmum svæðum. Verði því ekki komist hjá því að ráða verktaka í stað þess að láta vinnuskólabörn sjá um eyðinguna. Mosfellsbær hefur ákveðið að verja þremur milljónum króna til verksins. Að mati umhverfisstjóra er eyðing þessara ágengu plöntutegunda erfið vegna þess hve harðgerar þær eru og hversu fljótt og mikið þær sá sér í bæjarlandinu. Þetta kemur fram í minnisblaði sem lagt var fyrir umhverfisnefnd Mosfellsbæjar á síðasta fundi hennar. „Því er nauðsynlegt að fá til þess verktaka sem hafa öflug verkfæri sem henta til þess verks,“ segir í minnisblaðinu.Bjarki Bjarnason, rithöfundur og bæjarfulltrúi.Bjarki Bjarnason, formaður umhverfisnefndar Mosfellsbæjar, segir það ekki mögulegt né að vilji sé til þess að útrýma lúpínu í bæjarlandinu, hún sé orðin það útbreidd. Hins vegar skipti máli að hefta útbreiðslu hennar á náttúruverndarsvæðum innan bæjarmarka. „Nú í fyrsta skipti er sérstök fjárveiting sett í málaflokkinn. Þetta er ekki stór upphæð í stóra samhenginu. Nú getum við fengið verktaka til að slá lúpínu og kerfil áður en plönturnar sá sér,“ segir Bjarki. „Lúpínan er auðvitað umdeildasta planta landsins en þetta snýr einnig að kerflinum. Menn eru nú á einu máli um að sú planta sé til óþurftar.“ Lögð verður áhersla á að verja viðkvæm svæði í bænum þar sem þessar ágengu plöntur hafa ekki enn náð að dreifa sér að ráði. „Við erum ekki á leið í neitt lúpínustríð. Aðeins að slá hana snemmsumars þannig að hún beri ekki eins mikið af fræjum,“ segir Bjarni.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Fleiri fréttir Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Sjá meira