Bjóða rjúpur til sölu á bland.is Baldur Guðmundsson skrifar 19. desember 2017 07:00 Framboð á rjúpum annar ekki alltaf eftirspurn, enda er um brögðótta bráð að ræða. Hér eru rjúpur í makindum í Kjarnaskógi, fyrir nokkrum árum. vísir/kristján
Í það minnsta tvær auglýsingar þar sem gefið er til kynna að rjúpur séu til sölu er að finna á söluvefnum bland.is. Bannað er að selja rjúpur eða rjúpnaafurðir en veiðitímabilinu þetta árið lauk í nóvember. Annar notandinn auglýsir að rjúpur „vanti heimili“ en nánari upplýsingar fáist í einkaskilaboðum. Hinn auglýsir rjúpur til sölu með beinum hætti: „Vegna breyttra fyrirætlana um jólin eru tíu stykki rjúpur sem ég nýlega fjárfesti í til sölu,“ skrifar hann og óskar eftir tilboðum í fuglana. Björn Þorláksson, upplýsingafulltrúi Umhverfisstofnunar, segir að stofnuninni hafi fram að þessu ekki borist neinar ábendingar af þessum toga þetta haustið. „Við höfum fyrri ár stundum fengið ábendingar og höfum þá vísað þeim málum til lögreglu, því það er hennar að framfylgja því að sölubannið sé virt. Við erum fyrst nú að sjá vegna ábendingar þinnar tengla á bland.is þar sem grunur kviknar um brot,“ segir hann. Hann segir að fyrir virðist liggja að að minnsta kosti annar aðilinn hyggist bjóða upp á ólögleg viðskipti, þar sem tilboða sé óskað. „Alltaf þegar við fáum svona ábendingar bregðumst við við með því að senda málin til lögreglu og það verður gert í þessu tilviki,“ segir Björn. Indriði Ragnar Grétarsson, formaður SKOTVÍS, segir að félaginu hafi ekki borist ábendingar um tilraunir til sölu á rjúpum í haust. Slík viðleitni hefur heldur ekki borist til eyrna lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Erlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Fleiri fréttir „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Sjá meira