Grunsamlegar mannaferðir í Hafnarfirði Stefán Ó. Jónsson skrifar 4. desember 2017 06:21 Lögreglan hafði í nógu að snúast í miðborginni í nótt. Vísir/KTD
Dyraverðir á bar í miðborg Reykjavíkur óskuðu eftir aðstoð lögreglunnar upp úr miðnætti eftir að kona hafði veist að einum þeirra. Er lögreglumenn komu á vettvang varð þeim ljóst að konan hafði sparkað í höfuð dyravarðarins og var hún handtekin og vistuð í fangageymslu. Hún verður yfirheyrð síðar í dag vegna málsins. Þá var tilkynnt um innbrot í bifreiðar í Vesturbæ Reykjavíkur skömmu fyrir klukkan 02:00 í nótt. Að sögn lögreglunnar er lítið vitað um málið að svo stöddu og þannig óljóst hvort einn eða fleiri þjófar hafi þarna verið á ferðinni. Þjófurinn sem farið hafði inn í bíla í Breiðholti um klukkan 04:00 var hins vegar handtekinn. Sá sem tilkynnti um málið hafði náð að yfirbuga þjófinn og hélt honum þangað til lögreglumenn komu á vettvang. Það var svo um klukkan hálf fjögur sem lögreglu barst tilkynning um grunsamlegar mannaferðir við fyrirtæki í Hafnarfirði. Hinir grunsamlegu menn voru enn á vettvangi þegar lögreglan kom á svæðið og veitti hún bifreiðinni sem þeir óku eftirför. Bæði ökumaður og farþegi bílsins voru handteknir og er ökumaðurinn grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna. Farþeginn var vistaður í fangageymslu þar sem hann er grunaður um að hafa farið áður inn í fyrirtæki í Hafnarfirði. Að lokinni sýnatöku verður ökumaður einnig vistaður í fangageymslu vegna frekari rannsóknar málsins.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira