Telur að kvikan sé grunnt undir yfirborði fjallsins Jón Hákon Halldórsson skrifar 25. nóvember 2017 07:00 Mælar Veðurstofunnar við Virkisá. Vísindamenn hafa tekið sýni úr ánni, sem og öðrum, í grennd við Öræfajökul, undanfarna daga. Vísir/Jói K. „
Þótt merki um gosóróa hafi ekki sést á jarðskjálftamælum verður að telja yfirgnæfandi líkur á því að eldsumbrot séu farin af stað í Öræfajökli sem hafi þrýst súrri og seigfljótandi líparítkviku upp undir yfirborð bergsins undir öskjunni, svona svipað og þegar tannkrem er kreist úr túpu,“ segir Ólafur G. Flóvenz, forstjóri Íslenskra orkurannsókna. Ólafur telur kvikuhreyfingarnar vera mjög grunnt í fjallinu og þær geti brotist upp á yfirborðið hvenær sem er. Hann byggir þessa niðurstöðu sína á því að ekki hafi verið nein jarðhitavirkni þekkt í jöklinum. „Allar líkur benda til þess að kvikuuppsprettur í þessu stóra eldfjalli séu mjög djúpar og þess vegna verði ekki til venjuleg háhitakerfi þar. Þegar það svo gerist núna að það verður allt í einu til öflugt háhitakerfi að þá getur það ekki gerst nema að það sé kominn orkugjafi mjög grunnt. Þar af leiðandi dreg ég þá ályktun að það hafi kvika komist mjög nálægt yfirborði,“ segir Ólafur.Ármann Höskuldsson - stjórnarforðmaður - VatnajökulsþjóðgarðurHann segist þó ekkert fullyrða um það hvort eða hvenær kvikan nái upp á yfirborðið, en hún sé komin nálægt því. Ármann Höskuldsson, eldfjallafræðingur hjá Jarðvísindastofnun HÍ, segir alla fræðimenn vera sammála um að jarðhitinn á svæðinu geti ekki verið af neinum öðrum ástæðum en að kvika sé að hreyfa sig. Hins vegar sé ekki vitað enn hversu djúpt hún liggur. „Nú þarf bara að klára að koma upp mælum og fá nógu góðar gervihnattamyndir upp á þessa aflögun.“ Ármann segir rannsóknir á fjallinu vera mjög erfiðar í framkvæmd. „Það er sjór fyrir sunnan og jökull fyrir norðan og svo er þetta bara fjall sem nær 2.000 metra upp í loftið.“ Ármann segir menn ekki geta gert ráð fyrir nýjum tíðindum á hverjum degi. „Þetta er ekki þannig að hlutirnir séu að gerast frá degi til dags. Svo kannski eftir tíu daga erum við komin með meira af gögnum, sjáum eitthvað meira eða að það breytist eitthvað meir.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira