Viss um að tæknivæddir þjófar hafi stolið úr bíl í Hafnarfirði Sigurður Mikael Jónsson skrifar 27. nóvember 2017 07:00 Þjófar geta hagnýtt sér tækni og brotist inn ummerkjalaust. NordicPhotos/Getty „
Ég tapaði verðmætum þarna,“ segir Björgúlfur Þorsteinsson, rafvirki og kennari við Tækniskólann, sem varð fyrir því í vikunni að óprúttnir aðilar brutust inn í Lexus-bifreið hans í Hafnarfirði og létu greipar sópa. Björgúlfur telur ljóst að þarna hafi farið tæknivæddir þjófar sem hafi notað tækni þar sem merki frá lyklum bifreiða með lyklalausu aðgengi er notað til að opna þá. Hann telur fólk þurfa að gera ráðstafanir því að þjófar geti notað merki, þó veik séu, frá bíllyklum sem séu inni í húsum til að komast inn í bíla í dag, líkt og í hans tilfelli. Lögreglan telur ekki hægt að útiloka að þessi tækni sé komin til landsins.Björgúlfur Þorsteinsson, rafvirki og kennari við Tækniskólann„Eftir að hafa tilkynnt málið til lögreglu og bílaumboðsins fór ég að lesa mér til um þetta og sá að það er ekkert mál að fara inn í bíla með lyklalaust aðgengi og nokkuð algengt,“ segir Björgúlfur. „Ég sá að fólki hefur verið ráðlagt að geyma lyklana hreinlega inni í ísskáp en ég fann betri lausn, sem er að setja þá í kökubox úr málmi.“ Björgúlfur segir mikilvægt að fólk viti af þessum möguleika og verji eigur sínar og bíla. Mackintosh-dósirnar fyrir jólin geti þannig öðlast nýtt hlutverk við að sporna gegn innbrotum, sem Björgúlfur kveðst hafa heyrt að mikið hafi verið um í Hafnarfirði að undanförnu. Samhliða því að komast inn í læstan bílinn virðast þrjótarnir einnig hafa komist hjá öðrum öryggisbúnaði bílsins, öryggismyndavél sem Björgúlfur telur þjófana hafa ruglað meðan þeir athöfnuðu sig. Myndavélin hafi ekkert tekið upp meðan innbrotið átti sér stað en svo farið í gang þegar þegar hann kom að bílnum eftir á. Hann kveðst ekki í nokkrum vafa um að þetta sé þaulskipulögð starfsemi.Hér má sjá dæmi um búnað til að opna bíla með þessum hætti sem tækniöryggisfyrirtækið Quihoo 360 smíðaði fyrir lítið fé.„Þetta eru skipulagðir glæpir.“ Nokkur umfjöllun hefur verið um þessa tegund innbrota í bíla í erlendum fjölmiðlum á borð við The New York Times og á tæknivefsíðunni Wired undanfarið. Þar er bent á að hægt sé að kaupa og smíða búnað til þessa tiltölulega ódýrt. Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í Hafnarfirði, segir þessar aðferðir þekktar erlendis. „Það er búið að vera nokkuð um að farið sé inn í bíla hér. Ummerkjalaust, já. En hvort sú tækni sé notuð eða önnur hefur ekki verið skoðað sérstaklega. Þetta er þekkt erlendis og aðrar aðferðir en við getum ekki útilokað neitt. Það sem kemur erlendis berst oftar en ekki hingað.“ Margeir bendir á að mál sem þessi geti verið snúin, meðal annars þar sem tryggingafélögin líti svo á að ummerki um innbrot þurfi að vera til staðar svo fólk fái tjón sitt bætt.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira