Sjálfstæðismenn segja starfskjaranefnd hjá OR vera peningasóun Sigurður Mikael Jónsson skrifar 11. nóvember 2017 07:00 Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og stjórnarmaður í OR. Vísir/Vilhelm „
Miðað við þau verkefni sem stjórnarformaður og stjórn þurfa að sinna þá yrði ekki mikil viðbót að skoða laun þessara tveggja ágætu manna,“ segir borgarfulltrúinn Kjartan Magnússon sem á síðasta stjórnarfundi Orkuveitu Reykjavíkur ítrekaði þá skoðun sína að starfskjaranefnd fyrirtækisins væri óþörf og sóun á fjármunum. Þessi þriggja manna starfskjaranefnd, sem Kjartan á sjálfur sæti í núna, hefur fyrst og fremst það verkefni að fjalla um kjör forstjóra og innri endurskoðanda OR. Nýverið fól stjórn OR starfskjaranefnd sjálfri að skoða þörf OR á að hafa starfskjaranefnd og skoða aðra valkosti, nokkuð sem Kjartan viðurkennir að sé vissulega sérstakt. Niðurstaða meirihluta nefndarinnar var að halda óbreyttu fyrirkomulagi. Starfskjaranefndin lifði því af og samþykkti stjórn OR tillögu nefndarinnar á síðasta stjórnarfundi. Við það tilefni bókuðu Kjartan og Marta Guðjónsdóttir þá skoðun sína að ekki væri þörf á sérstakri nefnd til að fjalla um kjör tveggja manna, með þeim kostnaði sem slíku fylgdi. „Nefndin hefur verið starfrækt frá 2013. Við höfum bókað nokkrum sinnum að við teljum starfskjaranefnd óþarfa og þetta er ekki mikið verkefni sem hún hefur með höndum, segir Kjartan. Í dag fá nefndarmenn 44.762 krónur fyrir hvern fund og formaðurinn tvöfalda þá upphæð. Kostnaður við hvern fund þessarar þriggja manna nefndar er því 179 þúsund krónur. „Það er svo sem ekkert mikill kostnaður en ég tel að það væri skýrara að hafa þetta eins og þetta var,“ segir Kjartan. Hann bendir á að nefndin fundi minnst einu sinni á ári og síðan eftir tilefni. Því sé um að ræða óþarfa kostnað við verk sem færi betur á að fela stjórnarformanni og stjórn.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Innlent Fleiri fréttir Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Sjá meira