Pokastöðvar settar upp á suðurhluta Vestfjarða Aron Ingi Guðmundsson skrifar 18. nóvember 2017 07:00 Viðskiptavinirnir geta fengið poka að láni hér eftir. Vísir/aron
Verslanir, bókasöfn og þjónustufyrirtæki á sunnanverðum Vestfjörðum eru farin að bjóða viðskiptavinum sínum upp á taupoka að láni undir vörur sem þeir kaupa. Pokarnir voru saumaðir í sjálfboðavinnu og eru gerðir úr gömlum bolum og gardínum. Hugmyndin er að viðskiptavinir verslananna geti tekið poka með sér úr versluninni endurgjaldslaust og skilað aftur og settar hafa verið upp svokallaðar pokastöðvar í verslunum á svæðinu. Verkefnið er hluti af alþjóðlegu verkefni sem samtökin Boomerang Bags standa fyrir og gengur út á að minnka plastpokanotkun í heiminum. Pokarnir eru því merktir samtökunum og því hvaðan úr heiminum þeir koma. Hægt er að skila pokum sem fengnir voru að láni víðsvegar í heiminum, en pokastöðvar á vegum Boomerang Bags hafa verið settar upp m.a. í Kanada, Mexíkó, Þýskalandi, Frakklandi og Bretlandi. Lauslega er áætlað að þær verslanir sem taka þátt í verkefninu á sunnanverðum Vestfjörðum selji um 70.000 plastpoka á ári. Miðað við 500 heimili þá eru það 140 pokar á hvert heimili og vonast er til þess að þetta átak muni minnka þá plastpokanotkun umtalsvert. Það er styrkur hópur sem stendur að þessu verkefni og búið er að útbúa rúmlega 500 poka fyrir svæðið. Sjálfboðaliðarnir hafa hist og saumað síðustu vikur í samkomustöðunum Húsinu á Patreksfirði, Vindheimum á Tálknafirði og Læk á Bíldudal og munu halda því áfram eins og með þarf.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira