Velferðarráðuneytið kaupir nýja Volvo-lúxusjeppa á 19,5 milljónir Sigurður Mikael Jónsson skrifar 3. nóvember 2017 07:00 Nýr farkostur félagsmálaráðherra er sérlega glæsilegur en annar eins er væntanlegur fyrir heilbrigðisráðherra. vísir/Ernir
Velferðarráðuneytið hefur gengið frá kaupum á tveimur nýjum lúxusjeppum fyrir næstu ráðherra þess. Næsta félags- og jafnréttismálaráðherra og heilbrigðisráðherra verður ekið um á splunkunýjum Volvo XC90 T8, tengiltvinnjeppum. Kaupverð hvors bíls er 9.730.000 kr. svo alls eru bílakaupin upp á tæpar 19,5 milljónir króna. Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu var gengið frá kaupum á bílunum á grundvelli örútboðs Ríkiskaupa í sumar. Bíll félags- og jafnréttismálaráðherra hefur þegar verið tekinn í notkun en hann var afhentur á mánudag, en búist er við að ráðherrabifreið heilbrigðisráðherra komi í næstu viku. Félags- og jafnréttismálaráðherra var fyrir á 2008 árgerð af Land Rover Freelander sem ekinn er 194 þúsund kílómetra, en heilbrigðisráðherra á 2008 árgerð af Volvo XC90 sem ekinn er 265 þúsund kílómetra. Volvo XC90 tengiltvinnjepparnir hafa notið gríðarlegra vinsælda hér á landi og eru þeir mjög algeng sjón í umferðinni nú orðið. Þessar vinsældir ná einnig til ráðuneytanna því eftir kaupin á jeppunum tveimur samanstendur ráðherrabílaflotinn nú af fjórum tinnusvörtum Volvo XC90 T8 tengiltvinnjeppum. Fyrir voru ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra á slíkum jeppum, báðir keyptir í fyrra. Með kaupunum lýkur sömuleiðis endurnýjun ráðuneytanna á öllum bifreiðum ráðherrabílaflotans sem hófst í október 2014. Eru nú allir ellefu ráðherrar ráðuneytanna á nýjum eða nýlegum bílum. Heildarkaupverð þessara ellefu bíla nemur rúmlega 117 milljónum króna. Margir hinna nýju bíla eru tengiltvinnbílar, ganga bæði fyrir rafmagni og eldsneyti, og því bæði sparneytnir og umhverfisvænir. Nú þegar kjörnir þingmenn stíga stjórnarmyndunardans í kjölfar kosninganna er ljóst að ekki mun væsa um næstu ríkisstjórn.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Sjá meira