Real Madrid átti ekki í neinum vandræðum með Las Palmas í spænsku La Liga deildinni í kvöld.
Casemiro kom Real yfir á 41. mínútu með skalla eftir hornspyrnu. Marco Asensio tvöfaldaði forystuna á 56. mínútu með frábæru skoti áður en Isco gulltryggði sigurinn á 74. mínútu.
Algjör einstefna var í leiknum, en Real átti 27 skot á markið á móti tveimur frá Las Palmas.
Með sigrinum fer Real upp fyrir Atletico Madrid og í þriðja sæti deildarinnar. Barcelona er þó með átta stiga forystu á Real.
