Borgarstjórn fær tvö álit á kjörgengi Kristínar Jón Hákon Halldórsson skrifar 6. nóvember 2017 06:00 Kristín Soffía Jónsdóttir tók sæti að nýju í borgarstjórn Reykjavíkur í haust eftir að hafa dvalið í Danmörku. vísir/ernir
Forsætisnefnd Reykjavíkurborgar hefur óskað eftir lögfræðiáliti frá Trausta Fannari Valssyni, dósent í lögfræði við Háskóla Íslands, og Logos lögmannsþjónustu vegna vafa um kjörgengi Kristínar Soffíu Jónsdóttur borgarfulltrúa. Þetta staðfestir Líf Magneudóttir, forseti borgarstjórnar. Líf segir að óskað hafi verið eftir álitunum í síðustu viku. Ekki reyndist unnt að funda um málið í forsætisnefnd í gær þar sem álitin höfðu ekki borist. Búist er við því að þau verði tilbúin í næstu viku.Kristín Soffía Jónsdóttir, borgarfulltrúi.vísir/valliEins og Fréttablaðið hefur áður greint frá tók Kristín Soffía sæti aftur í borgarstjórn í haust eftir að hafa snúið aftur heim frá Danmörku þar sem hún var í fæðingarorlofi. Vafi hefur leikið á kjörgengi hennar. Ástæðan er sú að í 37. grein samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar segir: „Þegar borgarfulltrúi flytur úr sveitarfélaginu um stundarsakir má borgarstjórn ákveða, að hans ósk, að hann skuli víkja úr borgarstjórn þar til hann tekur aftur búsetu í Reykjavík. Slík ákvörðun skal tekin áður en borgarfulltrúi flytur um stundarsakir. Sé ekki tekin ákvörðun samkvæmt þessari málsgrein missir borgarfulltrúi kjörgengi við skráningu lögheimilis í öðru sveitarfélagi.“ Helga Björk Laxdal, skrifstofustjóri borgarstjórnar, hefur sagt í svari til Fréttablaðsins að Kristín Soffía hafi verið í fæðingarorlofi frá júnímánuði 2016 til júlímánaðar 2017. Enn fremur að borgarstjórn hafi enga aðkomu að málefnum borgarfulltrúa í fæðingarorlofi enda sitji þeir ekki í borgarstjórn á meðan á því stendur og þiggja hvorki laun né önnur réttindi á þeim tíma. Það er mat Helgu Bjarkar að Kristín Soffía hafi uppfyllt öll kjörgengisskilyrði þegar hún tók sæti í borgarstjórn á ný eftir fæðingarorlof. Síðar hefur Fréttablaðið greint frá því að upplýsingar úr Þjóðskrá benda til þess að Kristín Soffía hafi flutt lögheimilið sitt til Danmerkur hinn 8. apríl 2016. Samkvæmt upplýsingum úr fundargerðum Strætó bs. gegndi hún engu að síður skyldum borgarfulltrúa 18. apríl 2016 með því að taka þátt í stjórnarfundi Strætó í gegnum síma. Hún tók aftur þátt í fundi stjórnar Strætó í gegnum síma föstudaginn 29. apríl.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Vafi leikur á kjörgengi fulltrúa Samfylkingar í borgarstjórn Kristín Soffía Jónsdóttir hefur tekið sæti í borgarstjórn eftir dvöl erlendis í fæðingarorlofi. Samþykkt Reykjavíkurborgar gerir ráð fyrir að borgarfulltrúi sem fer í leyfi fái samþykki borgarstjórnar áður en hann flytur lögheimili sitt. 19. október 2017 06:00 Mál borgarfulltrúa bíður fram yfir kosningar Forsætisnefnd borgarstjórnar fundaði í gærmorgun um kjörgengi Kristínar Soffíu Jónsdóttur, borgarfulltrúa Samfylkingarinnar. 24. október 2017 06:00 Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Fleiri fréttir Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Sjá meira
Vafi leikur á kjörgengi fulltrúa Samfylkingar í borgarstjórn Kristín Soffía Jónsdóttir hefur tekið sæti í borgarstjórn eftir dvöl erlendis í fæðingarorlofi. Samþykkt Reykjavíkurborgar gerir ráð fyrir að borgarfulltrúi sem fer í leyfi fái samþykki borgarstjórnar áður en hann flytur lögheimili sitt. 19. október 2017 06:00
Mál borgarfulltrúa bíður fram yfir kosningar Forsætisnefnd borgarstjórnar fundaði í gærmorgun um kjörgengi Kristínar Soffíu Jónsdóttur, borgarfulltrúa Samfylkingarinnar. 24. október 2017 06:00