Deilan um húsið á Hellubraut verður útkljáð fyrir dómi 7. nóvember 2017 06:00 Húsið Hellubraut 7 í Hafnarfirði var byggt árið 1907. Nú vilja eigendur lóðarinnar rífa það niður. vísir/eyþór
Íbúar að Hamarsbraut 6 og Hamarsbraut 8 í Hafnarfirði hafa ákveðið að stefna Hafnarfjarðarbæ og Gunnari Hjaltalín endurskoðanda fyrir Héraðsdóm Reykjaness. Ástæðan er sú að Hafnarfjörður samþykkti deiliskipulagsbreytingu og umsókn um byggingarleyfi að Hellubraut 5 og Hellubraut 7 í Hafnarfriði. Gunnar er eigandi lóðanna. Stefnendur eru annars vegar Jakob Már Ásmundsson og Guðbjörg Hrönn Óskarsdóttir kona hans. Hins vegar Sigrún Arnardóttir og Sölvi Sveinbjörnsson. Aðalkrafa þeirra er sú að felld verði úr gildi ákvörðun bæjarstjórnar Hafnarfjarðar um að samþykkja deiliskipulagsbreytinguna og að felldar verði úr gildi ákvarðanir byggingarfulltrúa Hafnarfjarðar um að samþykkja umsóknir um byggingarleyfi að Hellubraut 5 og Hellubraut 7. Til vara krefjast stefnendur þess að ákvarðanir um að samþykkja byggingaráform á lóðunum verði felldar úr gildi. Lóðin Hellubraut 5 stendur auð núna. Á Hellubraut 7 stendur hins vegar einbýlishús sem byggt var árið 1907. Með deiliskipulagsbreytingunni yrði heimilt að rífa húsið. Í stefnunni er vísað til þess að húsið sé friðað. Minjastofnun hafi hins vegar heimilað endurnýjun hússins og gert það að skilyrði um að heimila niðurrif þess að nýtt hús með sama þakformi og halla og í sömu meginstærðum yrði byggt á grunni hins eldra. Stefnendur segja að áformaðar byggingar séu miklu stærri en gert hafði verið ráð fyrir. „Verður að telja að fyrirhuguð hús að Hellubraut 5 og 7 séu meiri að stærð og umfangi en búast mátti við í ljósi byggðamynsturs deiliskipulagsreitsins og að gættu jafnræði um nýtingu lóða á svæðinu,“ segir í stefnunni. Stefnendur telja að tveir fulltrúar bæjarstjórnar sem tóku ákvörðun um að samþykkja deiliskipulagið hafi verið vanhæfir til meðferðar málsins. Guðlaug Kristjánsdóttir, fulltrúi í bæjarstjórn, sé fyrrverandi maki íbúa á Hellubraut 3. Sá íbúi hafi gert athugasemdir við deiliskipulagstillöguna og teljist því aðili málsins þar sem hann hafi verulegra hagsmuna að gæta. Þá búi móðursystir Borghildar Sölveyjar Sturludóttur varabæjarfulltrúa einnig að Hamarsbraut 4. Hún hafi skilað inn athugasemdum við deiliskipulagstillöguna. Þá er bent á það í stefnunni að Gunnar hafi verið endurskoðandi fyrir Hafnarfjarðabæ og fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Hafnarfirði. Það og störf eiginkonu hans hjá bænum, sem varabæjarfulltrúi skapi vanhæfi borgarfulltrúa til að taka ákvörðun um deiluskipulagið.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Fleiri fréttir Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Sjá meira