Íslenskir kotruspilarar ná Evrópumeistaratitli Sveinn Arnarsson skrifar 12. október 2017 06:00 Frá leik Þjóðverja og Norðmanna á EM í kotru um helgina. Vísir/Ernir
Róbert Lagerman og Ingi Tandri Traustason urðu um helgina Evrópumeistarar í tvíkeppni í kotru en Evrópumeistaramótið var að þessu sinni haldið á Íslandi dagana 5.-8. október. Róbert segir kotruna í stórsókn og næstu skref vera að fjölga spilurum og breiða út fagnaðarerindið. Þegar Fréttablaðið náði tali af Róbert var hann enn í sigurvímu eftir að hafa unnið Evrópumeistaratitilinn í tvíkeppni. Í þeirri grein spila tveir og tveir saman á tveimur borðum. Þessa helgi var einnig haldin landsliðakeppni þar sem spilað var samtímis á fjórum borðum en einnig einstaklingskeppni. „Þetta var sannkölluð kotruveisla hér á landi,“ segir Róbert.Róbert Lagerman, Evrópumeistari í tvíkeppni í kotru.Kotra er tiltölulega ný hér á landi sem íþróttagrein þrátt fyrir að fjöldi manna hafi spilað þetta í heimahúsum og á krám landsins. Kotrusambandið var stofnað árið 2011 og síðan þá hefur kotran verið í framför og við eignast frambærilega spilara á evrópskan mælikvarða. „Þetta er ekkert ósvipað skák,“ segir Róbert, sem einnig er FIDE-meistari í skák. „Með mikilli æfingu og stúderingum með aðstoð kotruheila, sem virka eins og skáktölvur, verður þú betri og betri í þessum leik. Í þessu felst einnig mikill líkindareikningur og því byggist spilið að hluta til mikið á líkindareikningi.“ Róbert segir auðvitað að einhverju leyti heppni koma við sögu þegar þú kastar teningum í kotru. Hins vegar jafni það sig út. Á endanum sé það alltaf þannig að sá sem er bestur vinni leikinn. Til að lágmarka vægi heppninnar í teningaköstum eru oft spilaðir margir leikir.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Sjá meira