Lífið

Geta búið til sinn eigin tölvuleik

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Andri segir jafn mikinn áhuga á tækni hjá strákum og stelpum.
Andri segir jafn mikinn áhuga á tækni hjá strákum og stelpum. Vísir/Eyþór
Andri Kristjánsson er tæknitröll í Borgarbóksafninu í Gerðubergi og fræðir krakka þar um eitt og annað sem viðkemur því sviði. 

En hvenær fékk hann áhuga á tækni?

Ég hef alltaf haft gaman af því að skoða nýjungar í tækni en þegar ég byrjaði að sjá um Tilraunaverkstæði Borgarbókasafnsins 2016 fór áhuginn upp á næsta stig. Í dag er verkstæðið alltaf opið í Gerðubergi og á hverjum þriðjudegi koma félagasamtökin Kóder til okkar og kenna krökkum á skemmtileg forrit.

Finnst þér krakkar almennt hafa áhuga á tækni og er hann jafn milli stráka og stelpna? 

Já, ég myndi tvímælalaust segja það og áhuginn er jafn milli stráka og stelpna. Bæði kynin eru ótrúlega áhugasöm og hæfileikarík á tölvur.

Hvað á verkstæðinu er vinsælast hjá krökkum?

Raspberry Pi tölvurnar okkar eru vinsælastar en þrívíddarprentarinn og vínylskerinn vekja mesta áhugann.

Hvaða verkfæri nota krakkarnir?

Við erum að vinna eftir „maker­space“ hugmyndafræði þar sem er ekki endilega gert ráð fyrir verkfærum eða græjum, þetta snýst meira um hugarfarið gagnvart verkefninu og að mistök eru til að læra af þeim. En auðvitað er mjög gaman að vera með flottar græjur þó svo að þær skipti ekki öllu máli.

Kennir þú þeim bara í gegnum tölvur?

Við kennum grunninn í forritun í gegnum Scratch eða Sonic Pi sem eru eins konar tölvuleikir. Í byrjun nóvember verðum við líka með Game Jam í Gerðubergi þar sem krakkar geta búið til sinn eigin tölvuleik og þannig fengið innsýn í vinnuna á bak við tölvuleikjagerð. Við reynum líka að nota annars konar leiðir til að nálgast tölvuna eins og Makey Makey, sem mætti lýsa sem annars konar og skapandi leið til að stjórna tölvunni sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.