Vilja auka litagleðina 21. september 2017 11:00 Dóróthea Gunnarsdóttir og Árný Marteinsdóttir, eigendur verslunarinnar 16a á Skólavörðustíg. Vísir/Stefán
Kynning: Tískuverslunin 16a, Skólavörðustíg 16a, fagnar ársafmæli á morgun með ljúfum veitingum frá kl. 14-18. Verslunin býður kvenfatnað, töskur og skó. Árný Marteinsdóttir og Dóróthea Gunnarsdóttir, eigendur verslunarinnar, segja að þegar verslunin var stofnuð á síðasta ári hafi hugmyndin verið sú að auka fataúrval, liti og mynstur. „Okkur fannst vanta liti í fatnað hér á landi. Við heyrðum þetta líka hjá öðrum konum sem töluðu um fábreytt úrval. Hjá okkur er útgangspunkturinn litir, falleg mynstur og lífsgleði,“ segja þær. „Við fögnum ársafmælinu á morgun, 22. september, og miðað við móttökurnar síðasta árið verðum við að segja að viðskiptavinir okkar eru himinlifandi yfir nýjum sniðum, björtum litum og góðu verði. Við höfum fengið mikið hrós fyrir vöruúrvalið, bæði frá íslenskum viðskiptavinum og ferðamönnum. Fólki finnst gaman að sjá eitthvað nýtt og öðruvísi. Þetta hefur verið virkilega viðburðaríkt ár hjá okkur,“ segja þær stöllur en lögð er sérstök áhersla á góða og persónulega þjónustu í versluninni.Falleg mynstur í fatnaði frá mörgum þekktum tískumerkjum í stílhreinni verslun. MYND/STEFÁN„Við leggjum metnað okkar í nálægð við viðskiptavininn og höldum sérstök kvennakvöld þegar eftir því er leitað. Þá skapast alveg sérstaklega skemmtileg stemming. Við bjóðum kvennahópum upp á léttar veitingar og sýnum þeim vörurnar með annarri nálgun. Okkur finnst að konur sem klæðast fötum frá okkur skeri sig úr fjöldanum á jákvæðan og kvenlegan hátt. Litir skapa ákveðna gleði og gera samskipti við aðra léttari. Markhópur okkar eru konur á öllum aldri. Við höfum leitast við að velja hönnuði og framleiðendur eftir bestu sannfæringu. Allt eru þetta gæðamerki sem eru þekkt fyrir vandvirkni og góða hönnun. Má þar nefna King Louie, Sessún, Depeche, Nice Things, Mjuse, Alexander Hotto og Vagabond. Við höfum gert ýmislegt til þess að hafa umhverfið í versluninni hlýlegt og aðlaðandi. Viðskiptavininum á að líða vel, gefa sér tíma til að skoða og njóta góðrar þjónustu. Við viljum að konur hafi gaman af því að skoða vörurnar, kíkja í gamla miðbæinn og upplifa stemminguna á Skólavörðustígnum,“ segja þær.Í 16a er að finna fallegan og kvenlegan fatnað í mörgum litum. MYNDIR/STEFÁNKing Louie er aðalmerki 16a en það var stofnað árið 1980 af hollensku pari. „Við kolféllum fyrir þessu merki. Hönnuðirnir eru miklir aðdáendur vintage hluta og fannst til dæmis vanta hina fullkomnu svörtu turtle-neck peysu. Þau hönnuðu slíka peysu með Levi’s 501. Eftir það hefur KL vaxið stöðugt en markmið þeirra er að framleiða föt sem gerir fólk hamingjusamt,“ segja þær.Í versluninni 16a er mikið úrval af vönduðum töskum og skóm.„Það er líka góð tilfinning að KL framleiðir einungis föt við tryggar aðstæður. Fyrirtækið er meðlimur í Fair Wear Foundation en það eru samtök sem skuldbinda sig til að bæta vinnuskilyrði í fataframleiðslu. Þeir hafa strangt eftirlit með að vinnutími sé ekki of langur og barnaþrælkun er ekki samþykkt. Fylgst er með öllu öryggi og vinnuumhverfi. Framleiðendur KL ferðast til Tyrklands og Asíu á hverju ári til að skoða framleiðsluferlið. Þá hafa eigendur KL unnið að jafnrétti í meira en tuttugu ár. Tíu prósent fatnaðarins eru með GOTS, global organic textile standard. Það nýjasta í framleiðslunni er pólýester sem unnið er úr PET-flöskum. Undanfarið hefur KL fengið fjölda verðlauna fyrir mynstur í fatnaði.“Í versluninni er hlýlegt andrúmsloft og persónuleg þjónusta.16a er einnig með vandaða ítalska gæðaskó sem henta vel fyrir íslenskt veðurfar auk vinsælu Mjuse skónna í fallegum litum, rétt eins of fötin.Flottir skór sem tekið er eftir.Greinin er unnin í samvinnu með Versluninni 16a. 16a er með síður á Facebook og Instagram sem eru reglulega uppfærðar. Heimasíðan er 16a.is og símanúmerið er 562-0016.
Tíska og hönnun Mest lesið Hraustustu hjón Garðabæjar selja glæsihýsi Lífið Kveða orðróminn í kútinn: „Það eru engar deilur“ Lífið Endanlega búið spil hjá Johnson og Martin Lífið Hvað í ósköpunum gerði James Bond á Íslandi? Leikjavísir Romeo Beckham og Kim Turnbull sögð hætt saman Lífið Svona hljómar Himinn og jörð í flutningi Svölu Lífið Aron segist hættur í ClubDub Lífið „Okkur var ekkert cancelað, nema hann bara gerði það sjálfur“ Tónlist Í sjokki að sonurinn hafi verið á typpinu Lífið Opinberar nákvæmar upplýsingar um brjóstaaðgerðina Lífið Fleiri fréttir Unga fólkið sækir í svissnesk TAG Heuer A Country Night in Nashville kemur í Hörpu Orsakir flösu og áhrifarík meðferð „Það er alls ekki í tísku að brenna“ Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þorlákur er kominn í úrslit Heilög tvenna fyrir hlauparann! Yfir tvö hundruð tryllitæki sýnd um helgina Iðnaðarmaður ársins 2025 - Máni er kominn í úrslit Bakið er hætt að hefna sín Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þorleifur er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 - Eyjólfur er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 – Róbert er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þór er kominn í úrslit Með andlit sem fleiri en bara mæður þeirra geta elskað Iðnaðarmaður ársins 2025 - Elsa er komin í úrslit Iðnaðarmaður ársins - Davíð Már er kominn í úrslit Stuðla að heilbrigði með lífrænum barnamat Komdu með í ævintýri til Ítalíu Viltu kynnast töfrum Taílands? Ný og endurbætt snyrtivörudeild opnuð í Hagkaup Pub Quiz hvar sem er, hvenær sem er! Fyrsta háhælahlaup Íslandssögunnar Ný hugsun í heimi brúnkuvara Fyrirtæki á Norðurlandi styðja SÁÁ Komdu með á ströndina — Ný sumarlína frá Moomin Arabia BAUHAUS býður þér í glæsilega afmælisveislu! Aldrei verið eins einfalt að bóka tíma Tork gaur: BMW neglir fallegan framenda Batinn á vefjagigt kom úr óvæntri átt Sjá meira