Sport

París fékk Ólympíuleikana 2024

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Nú er ljóst hvar Ólympíuleikarnir 2024 og 2028 verða haldnir.
Nú er ljóst hvar Ólympíuleikarnir 2024 og 2028 verða haldnir. vísir/getty
Ólympíuleikarnir 2024 verða haldnir í París, 100 árum eftir að þeir voru haldnir þar síðast. Ólympíuleikarnir voru einnig haldnir í París árið 1900.

Ólympíuleikarnir 2028 verða hins vegar haldnir í Los Angeles. Þeir voru einnig haldnir í bandarísku borginni 1932 og 1984.

Greint var frá þessu á fundi Alþjóðaólympíunefndarinnar í Líma í Perú í dag.

París og Los Angeles voru einu borgirnar sem sóttust eftir því að halda Ólympíuleikana 1924 eftir að Hamborg, Róm og Búdapest drógu sig út úr kapphlaupinu.

Bæði París og Los Angeles vildu halda Ólympíuleikana 2024 en á endanum ákvað Los Angeles í bíða í fjögur ár eftir að Alþjóðaólympíunefndin ábyrgðist fjármögnun fyrir leikana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×