Rannsókn og lögsaga afstýri 18 ára fangelsi Jóhann Óli Eiðsson skrifar 2. september 2017 06:00 Hanna Lára Helgadóttir, réttargæslumaður foreldra Birnu, og Kolbrún Benediktsdóttir ræða saman. VÍSIR/VILHELM
Aðalmeðferð í máli Thomasar Møller Olsen lauk í gær og er niðurstöðu um framtíð hans að vænta innan fjögurra vikna. Ákæruvaldið telur að átján ára fangelsi sé hæfilegt verði hann fundinn sekur. Fyrstur til skýrslugjafar var þýski réttarmeinafræðingurinn Sebastian Kunz. Í vitnisburði sínum fór hann meðal annars yfir niðurstöður krufningar sinnar á líki brotaþola. Sökum þess, og að verjandi Olsens hefði boðað persónulegar spurningar um heilsufar hinnar látnu, ákvað Kristinn Halldórsson dómsformaður að loka þinghaldi á meðan skýrslutaka yfir Kunz fór fram. Næst var hringt til Þýskalands, að menn héldu. Dómtúlkur og vitni ræddu saman en áttu í basli með að skilja hvor annan enda talaði túlkurinn þýsku en vitnið svaraði á dönsku. „Þetta er vont mál því dönskukunnátta mín er ekki sú besta,“ sagði dómtúlkurinn Magnús Diðrik Baldursson, sem einnig er skrifstofustjóri Háskóla Íslands. Viðstaddir skelltu síðan upp úr þegar vitnið svaraði á íslensku. Var þar á ferðinni færeyski skipverjinn Niels Heinesen en ekki dr. Mario Darok líkt og menn héldu. „Það gekk í sjálfu sér mjög vel að tala við Thomas allt þar til hann losnaði úr einangrun og fór í opna gæslu. Þá varð ég var við nokkra paranoju,“ sagði Sigurður Páll Pálsson geðlæknir. Hann var dómkvaddur til að meta geðheilsu hins ákærða. Var það mat hans að Thomas væri sakhæfur en haldinn persónuleikaveilu sem hefði það í för með sér að hann neitaði að horfast í augu við galla í fari sínu. Meðal annarra í vitnastúku í gær má nefna Grím Grímsson, yfirmann miðlægrar rannsóknardeildar LRH, og barþjón á English Pub sem þekkti vel til Nikolajs Olsen. Að skýrslutökum loknum hófst munnlegur málflutningur. „Algjör lágmarksrefsing, sé aðeins horft til dómaframkvæmdar, er átján ára fangelsi,“ sagði Kolbrún Benediktsdóttir aðstoðarhéraðssaksóknari í ræðu sinni. Vísaði hún til þess að yrði hann sakfelldur fyrir manndrápið þýddi það sextán ára fangelsi. Þó væru uppi atvik í málinu sem gætu réttlætt þyngri refsingu. Þá bætti hún við að þumalputtareglan fyrir kíló af kannabisefnum væri mánaðarfangelsi. Hér væru kílóin rúmlega 23 og því væri unnt að smyrja tveimur árum á dóminn. Sagði hún að framburður Thomasar hefði sífellt tekið breytingum. Á rannsóknarstigi hefði hann ítrekað aðlagað sögu sína þeim gögnum sem honum voru kynnt. Fyrir dómi hefði framburður hans síðan umturnast án nokkurrar sýnilegrar ástæðu. „Það er ekki hægt að byggja á framburði hjá dómi eða lögreglu. Hann er einfaldlega ekki að segja satt,“ sagði Kolbrún. Thomas hefur ávallt haldið fram sakleysi sínu í málinu. Verjandi hans, Páll Rúnar M. Kristjánsson, telur að vísa beri málinu frá eða sýkna hann ella. Frávísunarkrafan er reist á þeim grunni að svo margar gloppur séu í málinu að í ákæruskjalinu sé ákæruvaldið að geta í eyðurnar. „Það er nær ómögulegt að taka til varna gegn ákæru sem er orðuð á þennan veg,“ sagði Páll. Sýknukrafan er studd þeim rökum að rannsókn málsins hafi verið svo áfátt að uppi sé réttmætur vafi um það hvort Thomas hafi ráðið Birnu bana eður ei. Þá sé einnig vafi uppi um hvort handtaka sérsveitarmanna og Landhelgisgæslunnar um borð í Polar Nanoq hafi brotið gegn hafréttarsamningum. „Að mati ákærða fólu aðgerðirnar í sér brot gegn þjóðréttarlegum skuldbindingum og Mannréttindasáttmála Evrópu. […] Engin skrifleg heimild er um samþykki fánaríkisins fyrir handtöku um borð í skipinu í efnahagslögsögunni,“ sagði Páll. Það væri síðan dómaranna að ákveða hvaða áhrif þessi ólögmæta handtaka ætti að hafa. Dóms í málinu er að vænta innan fjögurra vikna. Bogi reyndist vera JónDómarar í málinu eru alls þrír. Kristinn Halldórsson er dómsformaður og er áhugavert að fylgjast með svipbrigðum hans á meðan spurningar standa yfir. Hefur hann átt það til að vera kíminn á svip yfir nokkrum spurningum og svörum. Við hlið hans sitja Ástríður Grímsdóttir og Jón Höskuldsson. Leið mistök höfðu það í för með sér að í umfjöllunum var Jón ítrekað kallaður Bogi Hjálmtýsson en Bogi kom að málinu á fyrri stigum. Jón hafði setið þögull öll réttarhöldin en mælti í fyrsta sinni í gær. „Það er Jón Höskuldsson dómari sem spyr,“ sagði Jón áður en hann spurði Sigurð Pál Pálsson hvort sálfræðipróf, sem hann óskaði eftir, hefði verið nauðsynlegur þáttur í mati hans. Vaknaði þá fjölmiðlafólk upp við vondan draum enda hét Jón ekki Bogi. Beðist er afsökunar á rangnefni.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Innlent Fleiri fréttir Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Sjá meira