Margmiðlunarhönnuður á krabbameinslækningadeild Landspítali kynnir 7. september 2017 14:30 Ástríður Edda segir Landspítala allt öðruvísi vinnustað en hún bjóst við.
Mannauðsramminn: Ástríður Edda Geirsdóttir er deildarritari á krabbameinslækningadeildinni 11E á Landspítala við Hringbraut þar sem hún hefur starfað í liðlega eitt ár. Ástríður Edda er menntaður þjónn og starfaði áður meðal annars á veitingastaðnum Nauthóli. "Mig langaði að breyta til og skipta um takt frá þeirri vinnu. Annars er ég margmiðlunarhönnuður frá Tækniskóla Íslands og grafískur miðlari í ofanálag, þannig að minn bakgrunnur er nokkuð fjölbreyttur. Óskastarfið er að fást við hönnun, en þangað til er ég hérna og líkar ágætlega." Ástríður Edda er alin upp í Árbænum, en býr nú Fossvogi með tólf ára syni sínum sem er upprennandi sellóleikari. "Ég var að læra prjóna og ætlaði þannig að koma mér upp áhugamáli til að slaka á með, en það hefur gengið ósköp hægt. Skemmtilegast þykir mér að fara í ræktina og annað hvort smella mér í lyftingar eða taka sprett í hjólatíma. Svo var ég að læra foam-flex um daginn, en það snýst um liðleika og mýkt sem er meðal annars náð fram með notkun á sniðugri frauðplastrúllu." Ástríður Edda segir Landspítala allt öðruvísi vinnustað en hún bjóst við. "Álagið er mikið og flæðið ólíkt því sem ég hef upplifað annars staðar. Ég gæfi mikið fyrir að vera með betri tölvubúnað við höndina. En starfsfólkið hér og andrúmsloftið er vitaskuld einstakt. Það er svo mikil hlýja, alúð og atorka í öllum hérna, þrátt fyrir umhverfi sem er oft erfitt." Hægt er að skoða fleiri mannauðsramma frá Landspítala hér. Þessi grein er unnin í samstarfi við Landspítalann.
Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Lífið Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ Lífið Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Lífið Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Tónlist Fleiri fréttir Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira