Þriðjungur fer á heilsugæslu út af geðrænum vandamálum Jón Hákon Halldórsson skrifar 31. ágúst 2017 06:00 Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins rekur tólf heilsugæslustöðvar. Að auki eru þrjár einkareknar. Ein þeirra er Heilsugæslan Lágmúla. Þar er starfandi sálfræðingur. Vísir/GVA
Þriðjungur þeirra sem leita á Heilsugæsluna gerir það fyrst og fremst vegna geðræns vanda. Tugir bíða eftir hópmeðferð. Barnasálfræðingar eru starfandi á öllum stöðvum en mikil uppbygging er fram undan fyrir átján ára og eldri. Samkvæmt aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum til fjögurra ára, sem samþykkt var í apríl 2016, er stefnt að því að gagnreynd meðferð sálfræðinga við algengustu geðröskunum verði aðgengileg á 50 prósentum heilsugæslustöðva í árslok 2017 og á 90 prósentum heilsugæslustöðva í lok árs 2019. Miðað við hvernig staðan er í dag er ólíklegt að það náist að manna helming stöðva fyrir lok árs. Sálfræðingar hafa starfað á nokkrum stöðum innan heilsugæslunnar frá 2007. Ráðinn var fagstjóri sálfræðiþjónustu í fyrravor og byrjað að fjölga stöðum sálfræðinga hinn 1. september. Byrjað var á að ráða sálfræðinga fyrir börn, á aldrinum 0-18 ára. „Þeir eru núna starfandi á öllum stöðvum á höfuðborgarsvæðinu. Þeir sinna líka mæðravernd á meðan konur eru þungaðar og á fyrsta ári eftir fæðingu,“ segir Agnes Agnarsdóttir, fagstjóri sálfræðiþjónustunnar.Agnes AgnarsdóttirAgnes segir að nú eigi eftir að manna stöður til að mæta eftirspurn fyrir sálfræðiaðstoð fyrir einstaklinga, átján ára og eldri. „Það ferli er byrjað og við höfum ráðið fyrsta fullorðinssálfræðinginn á eina stöð og ætlum að ráða á fleiri fyrir áramót. Eina þjónustan sem við veitum fullorðnum er að við bjóðum upp á hópmeðferð og það er gagnreynd meðferð, hugræn atferlismeðferð. Það er fyrir fullorðna í sex vikur. Þessi meðferð er nægjanleg fyrir hluta fólks en ekki alla,“ segir Agnes. Heilsugæslan vilji geta boðið upp á góð matsviðtöl til að greina vanda fólks. Svo vill heilsugæslan geta boðið upp á þjónustu fyrir fólk með vægan geðrænan vanda, sérstaklega þunglyndi og kvíða, og miðlungsþungan vanda. „Ef vandinn er greindur svo alvarlegur að ekki er unnt að sinna honum í grunnþjónustu er vísað á geðsvið Landspítalans eða önnur viðeigandi úrræði.“ Agnes bendir á að rannsóknir sýni að þriðjungur þeirra sem leita á heilsugæslustöðvar leitar þangað fyrst og fremst vegna geðræns vanda. Það sé mikilvægt fyrir heilsugæsluna að geta boðið upp á sálfræðiþjónustu, bæði til þess að geta gripið fyrr inn í ef vandi steðjar að hjá fólki en líka til að geta fylgt eftir einstaklingum sem hafa þegið þjónustu hjá geðsviði Landspítalans. „Það eru breyttir tímar og sálfræðiþjónusta ætti að vera eðlilegur hluti af þjónustu heilsugæslunnar,“ segir Agnes. Fagstjórinn segir að fullorðnum einstaklingum standi fyrst og fremst til boða hópmeðferð á heilsugæslustöðvunum núna. „Hópmeðferðin er ekki í boði á öllum heilsugæslustöðvum. Það eru ekki tök á því eins og staðan er í dag. Við höfum verið að bjóða upp á þetta á fjórum stöðvum í einu. Það er alltaf einhver biðlisti og ég veit að á einni stöðinni bíða núna tæplega hundrað manns. Þar tökum við inntökuviðtöl og þar skoðum við alvarleika vandans. Ef við rekumst á alvarlegt mál, þá vísum við í viðeigandi úrræði.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Innlent Fleiri fréttir Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Sjá meira