Milljónir upplifðu almyrkva á sólu Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 21. ágúst 2017 23:30 Melania og Donald Trump fylgdust vel með. Vísir/AFP
Milljónir Bandaríkjamanna, þar á meðal Donald Trump Bandaríkjaforseti og eiginkona hans Melania, litu upp til sólarinnar í dag til þess að verða vitni að fyrsta almyrkva af þessu tagi í 99 ár sem gengur þvert yfir Bandaríkin. BBC greinir frá. Almyrkvinn sást fyrst frá Oregon-ríki klukkan korter yfir tíu að staðartíma, eða korter yfir fimm að íslenskum tíma. Lauk honum í Suður-Karólínu um klukkan korter í sjö. Áhugasamir flykktust til hinna ýmsu smábæja víðs vegar um Bandaríkin þar sem hvað best var að upplifa almyrkvann. Um hundrað þúsund heimsóttu meðal annars Carbondale í Illinois þar sem almyrkvinn varði hvað lengst, í um tvær mínútur og 40 sekúndur. Donald Trump tók sér tíma frá vinnudeginum í Hvíta húsinu til þess að líta upp til himins ásamt eiginkonu sinni og syni þeirra, Barron Trump. Héðan frá Íslandi sást lítilsháttar deildarmyrkvi. Hann hófst klukkan tuttugu og eina mínútu yfir sex, náði hámarki nú klukkan 18.44 og lauk klukkan fimm mínútur yfir sjö. Hér að neðan má sjá myndband af almyrkvanum, ásamt nokkrum myndum sem teknar voru á vegum Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna.Mynd/NASAMynd/NASA
Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Skakkur á rafskútu Innlent Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Innlent Fleiri fréttir Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Sjá meira