Stefnt að bílalausri miðborg Kaupmannahafnar Aðalheiður Ámundadóttir skrifar 26. ágúst 2017 06:00 Danska leyniþjónustan telur hættu á hryðjuverkum. Fréttablaðið/NordicPhotos
Danska leyniþjónustan vill að nánast öll bílaumferð verði bönnuð í gamla miðbænum til að verjast hryðjuverkum. Nái tillaga leyniþjónustunnar fram að ganga verður svæði sem nær frá Tívolíinu að Kóngsins Nýjatorgi og síkjunum að höfninni lokað öllum nema sjúkrabifreiðum, slökkviliði og öðrum bifreiðum með sérstakt erindi. Að mati leyniþjónustunnar gerir mikill fjöldi gangandi og hjólandi vegfarenda á litlu svæði gamla miðbæinn að skotmarki árása á borð við hryðjuverkaárásirnar í Barcelona, Nice og Berlín. Jafnframt hafa almannavarnir varað við því að borgin sé vanbúin til að bregðast við afleiðingum slíkrar árásar. Borgarstjórn Kaupmannahafnar leitar nú leiða til að bregðast við ábendingum leyniþjónustunnar og almannavarna og tryggja öryggi miðborgarinnar, án þess þó að fórna lífsgæðum íbúanna. Markmiðið er að halda tjóni af völdum hugsanlegra hryðjuverka í lágmarki, fremur en að koma í veg fyrir þau með öllu. Nota megi tré og ýmiss konar mannvirki til þess að gera nánast ómögulegt að valda miklum skaða með ökutæki, án þess að skaða ásýnd gamla bæjarins. Steypublokkir sem nú loka Strikinu verði til dæmis teknar og settar hindranir á borð við bekki og reiðhjólastæði, sem þjóni varnarhlutverki en séu jafnframt bæjarprýði.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Fleiri fréttir Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Sjá meira