Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 16. apríl 2026 15:21 Leó lætur sér ekki segjast af Trump. EPA/ALBERTO PIZZOL Leó fjórtándi páfi segir heiminn liggja undir skemmdum vegna örfárra harðstjóra sem eyði milljörðum í stríð. Páfinn er þar talinn skjóta föstum skotum að Donald Trump Bandaríkjaforseta en þeir hafa átt í opinberum deilum undanfarna daga.
Páfinn vék orðum sínum að harðstjórum í ræðu sinni sem hann hélt í Kamerún í Afríku í dag en hann er í opinberri heimsókn í heimshlutanum. Bandaríkjaforseti hefur hellt úr skálum reiði sinnar yfir páfann eftir að sá síðarnefndi sagði að það væri líkt og að „ranghugmyndir um almætti“ drifu áfram hernað Ísraela og Bandaríkjanna í Íran og fleiri stríðsátök í heiminum. Forsetinn brást ókvæða við. Sagði páfann meðal annars vera veikgeðja þegar kæmi að glæpum og birti mynd af sér búna til með gervigreind þar sem hann var í Jesú-líki. Forsetinn sagði síðar að hann hefði talið sig vera lækni á myndinni, en ekki Jesú. „Heimurinn er eyðilagður af örfáum harðstjórum, en samt er honum haldið saman af fjölda stuðningsríkra bræðra og systra,“ sagði páfinn, sem er í ellefu daga heimsókn til Afríku eins og áður segir en Guardian fjallar um ummæli hans. Hann ávarpaði samkomu í dómkirkju í borginni Bamenda í vesturhluta landsins. „Vei þeim sem hagræða trúarbrögðum og sjálfu nafni Guðs í eigin hernaðarlegum, efnahagslegum og pólitískum tilgangi og draga það sem er heilagt niður í myrkur og saurlífi,“ sagði Leó. „Þeir líta fram hjá þeirri staðreynd að milljörðum dollara er varið í dráp og eyðileggingu, en samt er fjármagn sem þarf til lækninga, menntunar og endurreisnar hvergi að finna.“
Bandaríkin Trúmál Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Kamerún Leó fjórtándi páfi Páfagarður Tengdar fréttir Trump hjólar í páfa Donald Trump Bandaríkjaforseti fór mikinn gegn Leó páfa á samfélagsmiðlum í nótt og í samtali við fréttamenn. Hann sagðist ekki aðdáandi páfa, sakaði hann um að ganga erinda vinstri manna og sagðist ekki vilja páfa sem þætti það í lagi að Íranir eignuðust kjarnavopn. 13. apríl 2026 06:46 Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Sjá meira
Trump hjólar í páfa Donald Trump Bandaríkjaforseti fór mikinn gegn Leó páfa á samfélagsmiðlum í nótt og í samtali við fréttamenn. Hann sagðist ekki aðdáandi páfa, sakaði hann um að ganga erinda vinstri manna og sagðist ekki vilja páfa sem þætti það í lagi að Íranir eignuðust kjarnavopn. 13. apríl 2026 06:46