Hrossin eins og hráviði einni viku síðar Sveinn Arnarsson skrifar 18. ágúst 2017 04:30 Hestarnir voru skotnir í bóginn en það samræmist ekki reglugerð um velferð hrossa. vísir/sveinn
Matvælastofnun (MAST) lét skjóta fjóra graðhesta á færi á Skriðulandi í Hörgársveit á fimmtudaginn í síðustu viku. Viku seinna hafði hræjunum ekki verið fargað og lágu þar eins og hráviði um landareignina. Ólafur Jónsson, héraðsdýralæknir á svæðinu, segir mannúðlega að verki staðið við drápið á hrossunum en ekki var farið eftir reglugerð um velferð hrossa. Upphaf málsins má rekja til þess að á annan tug graðhesta var í fóðurlitlu hólfi á Skriðulandi. Skemmdu þeir girðingar til að brjóta sér leið út úr hólfinu í leit að æti og hlupu á fjall. Þar lenti þeim saman við annað stóð í eigu nærliggjandi bæja sem í voru hryssur, folöld og geldingar. Slógust stóðhestarnir svo mjög að stórsá á þeim og því þurfti að aflífa fjóra þeirra. Það var gert í síðustu viku. Matvælastofnun fékk dýralækni með stórt skotvopn til að mæta á staðinn. Graðhestarnir, sem átti að aflífa, voru reknir inn í hesthús og teknir út, einn í einu og þeir skotnir á færi við bæinn. „Þetta var að okkar mati mannúðlegasta mögulega aðferðin við að drepa skepnurnar. Samkvæmt mínum heimildum drápust þeir samstundis,“ segir Ólafur Jónsson, héraðsdýralæknir Matvælastofnunar á Norðurlandi eystra.Eiganda hrossanna var falið að farga hræjunum.vísir/sveinnAf myndum að dæma hafa tveir graðhestarnir samt sem áður borist nokkuð langa leið frá gerðinu fyrir framan hesthúsið. Rauður stóðhestur liggur langt niðri á túni við húsið og brúnn hestur hefur hlaupið úr gerðinu og fest sig í girðingu hinum megin við gerðið og drepist þar. Aðspurður af hverju hrossin hafi ekki verið skotin í hausinn segir Ólafur bógskot vera mannúðlegri aðferð. „Það á að drepa hross á þennan hátt. Ef einhver hefði skotið hross í hausinn yrði ég reiður því það á ekki að viðhafa þau vinnubrögð,“ segir Ólafur.Tveir graðhestar voru komnir nokkuð langt frá gerðinu þegar þeir drápust.vísir/sveinnHins vegar segir í 14. grein reglugerðar um velferð hrossa að aflífa eigi hross með því að skjóta þau í ennið. „Heimilt er að aflífa hross með skoti í enni […] með skotvopni með lausu skoti. Einnig er heimilt að nota pinnabyssu með pinna sem gengur inn í heila.“ Einnig segir í sömu grein að forðast skuli að hross og önnur dýr verði þess vör. Ljóst er að ekki var farið eftir þessu ákvæði í reglugerð um velferð hrossa; velferð sem Matvælastofnun á að gæta. Að mati MAST var ekki talin ástæða til að fara með hrossin í sláturhús. Þegar dýralæknirinn sem MAST fékk til verksins, í viðurvist starfandi héraðsdýralæknis, hafði lokið sér af við að skjóta hestana, gengu þeir af vettvangi og létu það eigendum hrossanna eftir að farga þeim og koma þeim fyrir samkvæmt viðurkenndum aðferðum. Eigandinn hafði hins vegar verið sviptur umráðum yfir þessum hrossum. Viku seinna hafði hann enn ekki fargað þeim. Héraðsdýralæknir segir það óásættanlegt en telur að Matvælastofnun hafi ekki átt að sjá um förgun hrossanna eftir að hafa tekið ákvörðun um að drepa þau. „Við lögðum það í hendur ábúenda að farga þessum hrossum. Ég hafði svo af því spurnir í gær [fyrradag] að ekki væri búið að farga þeim. Hef ég gefið eiganda jarðarinnar sólarhring til að farga hrossunum,“ segir Ólafur. Eftir standa fimm graðhestar á jörðinni sem héraðsdýralæknir telur að ábúendur geti annast. Hrossin séu í góðum holdum og sé gefið hey í hólfið þar sem þau eru í dag. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafa ábúendurnir hins vegar áður komist í kast við Matvælastofnun vegna vanbúnaðar. Einnig hefur eigandi jarðarinnar, sem býr á Brimnesi, komist í kast við MAST og fór fram vörslusvipting alls bústofns hans í janúar á þessu ári. Þá var á fimmta tug nautgripa sent í sláturhús og aflífað þar.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Nánast búin með stafrófið Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Fleiri fréttir Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi Sjá meira