Mikilvægt að veggjald fæli bílstjóra ekki frá Benedikt Bóas skrifar 19. ágúst 2017 06:00 Frá hausti 2018 til vors 2021 fást svör við spurningum sem skipta mestu máli um rekstrarforsendur ganganna, segir í skýrslunni. vísir/auðunn
Ljóst er að gjaldskrá Vaðlaheiðarganga verður að vera talsvert hærri en í Hvalfirði til þess að endurheimtur lána að fullu séu raunhæfar. Þetta kemur fram í skýrslu Friðriks Friðrikssonar rekstrarhagfræðings sem unnin var fyrir fjármála- og efnahagsráðuneytið og birtist í gær. Í viðmiðunarlíkönum bæði IFS Greiningar og í skýrslu Friðriks er gert ráð fyrir að veggjald í göngin verði að meðaltali 1.220 kr. án vsk. eða um 1.500 krónur með vsk. Í skýrslunni kemur fram að þjóðhagslega hagkvæmt verður að tryggja að sem allra mest af umferðinni fari í gegnum göngin. Afar mikilvægt sé að fara í vandaða greiningu á því hvert veggjaldið megi vera til að tryggja að fólk vilji nota þau því göngin stytta vegalengdina aðeins um 15 kílómetra. Tiltölulega lítil vegstytting gerir ákvörðun um upphæð veggjalda mjög vandasama. Í skýrslu Friðriks er miðað við 40 ára endurgreiðslutíma á langtímaláni ríkisins til Vaðlaheiðarganga. Styttri lánstími sé varla raunhæfur, bendir hann á. Í frumathugun frá 2002 kom fram að gjaldið mætti ekki vera hærra en kostnaður við að aka 15 kílómetra leið, bæði í rekstri bifreiðar og tíma bílstjóra. Ekki sé líklegt að vegfarendur sætti sig við veggjöld sem væru hlutfallslega mun hærri en í Hvalfirði þegar litið er til munar á styttingu vegalengda og þar með sparnaðar umferðarinnar. Ef áætlanir standast verða Vaðlaheiðargöng tekin í notkun síðsumars 2018. Dragist opnunin fram yfir ágúst munu þau ekki nýtast fyrir þá miklu umferð sem er á svæðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Nánast búin með stafrófið Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Fleiri fréttir Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi Sjá meira