Arðsemi bankanna enn undir markmiði Kristinn Ingi Jónsson skrifar 8. ágúst 2017 06:00 Grunnrekstur bankanna fer batnandi að því er fram kemur í skýrslu Bankasýslu ríkisins. vísir/vilhelm
Arðsemi stóru viðskiptabankanna þriggja af reglulegum rekstri batnaði lítillega í fyrra en uppfyllir þó ekki enn þá kröfu sem íslenska ríkið gerir til langtímaarðsemi eignarhlutar síns í bönkunum. Arðsemi reglulegs rekstrar Íslandsbanka og Landsbankans jókst smávegis á milli ára, og nam 8,2 og 5,9 prósentum af eigin fé bankanna, en hins vegar lækkaði arðsemi Arion banka í 5,3 prósent sem er lægsta arðsemi sem bankinn hefur skilað á síðastliðnum fimm árum. Þrátt fyrir að bókhaldslegur hagnaður bankanna þriggja hafi dregist saman um 53,8 milljarða króna á milli áranna 2015 og 2016, þá batnaði afkoman af reglulegum rekstri um 4,7 milljarða. Meginskýringin á þessari bættu afkomu liggur í aukningu á hreinum vaxtatekjum sem jukust um níu milljarða króna á milli ára, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Bankasýslu ríkisins. Eftir að hafa dregist nokkuð saman á árunum 2012 til 2014 hefur hagnaður bankanna af reglulegum rekstri aukist á síðustu tveimur árum. Bankarnir þrír hafa skilað miklum heildarhagnaði, eða sem nemur samtals 527 milljörðum króna, á undanförnum átta árum, en hagnaðurinn hefur einkum og sér í lagi skýrst af óreglulegum liðum eins og virðisaukningu útlána og sölu eigna. Eftir sem áður eiga bankarnir enn verk fyrir höndum við að bæta afkomu sína af grunnrekstri. Þannig var arðsemi bankanna af reglulegum rekstri minni í fyrra, þegar hún var 6,4 prósent, heldur en árið 2012, en þá nam hún 7,9 prósentum. Er hún þannig enn umtalsvert undir þeirri arðsemiskröfu sem ríkið gerir til eignarhlutar síns í bönkunum. Arðsemi Landsbankans hefur lagast frá árinu 2014, að sögn Bankasýslunnar, rétt eins og arðsemi Íslandsbanka, sem hefur bætt afkomu sína af reglulegri starfsemi á hverju ári frá 2012. Hins vegar stóð arðsemi reglulegs rekstrar Arion banka nánast í stað á árunum 2013 og 2015 og lækkaði á síðasta ári. Hlutur ríkisins hvergi meiri en hér á landi Bankasýsla ríkisins bendir á í skýrslunni að fjárbinding íslenska ríkisins í eignarhlutum sínum í viðskiptabönkunum sé orðin „gríðarleg“ í samanburði við önnur Evrópuríki. Þannig hafi hlutur ríkisins í bókfærðu eigin fé stóru viðskiptabankanna þriggja aukist úr 13,8 prósentum af vergri landsframleiðslu árið 2015 í 18,7 prósent í fyrra. Til samanburðar var hlutfallið 4,6 prósent í Belgíu, 1,9 prósent í Bretlandi og 2,3 prósent í Hollandi í fyrra, að sögn Bankasýslunnar. Þess má geta að hlutfallið var 3,6 prósent hér á landi í árslok 1997, þegar ríkissjóður átti allt hlutafé í Búnaðarbankanum, Fjárfestingarbanka atvinnulífsins og Landsbankanum.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent Fleiri fréttir Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Sjá meira