Talsmaður lögfræðiteymis Trump segir upp Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 21. júlí 2017 08:45 Donald Trump, forseti Bandaríkjanna. Vísir/Getty
Mark Corallo, talsmaður lögfræðiteymis Donalds Trump Bandaríkjaforseta hefur sagt upp störfum. Samkvæmt frétt á vef BBC er ástæðan sú að hann sé ósáttur með þá tefnu teymisins að koma óorði á teymið sem fer með rannsókn á meintum afskiptum Rússa af forsetakosningunum í nóvember í fyrra. Corallo er náinn vinur Roberts Mueller, sérstaks saksóknara sem fer með rannsóknina, sem fjölmiðlar vestanhafs telja að Trump vilji víkja úr embætti. Mueller hefur ráðið til starfa stórskotalið lögfræðinga en hann er einnig að rannsaka hvort að kosningateymi Trump hafi verið í slagtogi við rússnesk yfirvöld.The New York Times greindi frá því að lögfræðiteymi Trump vilji draga úr trúverðugleika rannsóknar Mueller og sé með bakgrunn starfsfólks hans til rannsóknar og leiti að öllum mögulegum hagsmunaárekstrum.The Washington Post greindi einnig frá því að Trump hafi spurt lögmenn sína hversu mikið vald hann hafi til að veita fólki sakaruppgjöf. Einn heimildarmaður segir forsetann hafa athugað hvort hann geti veitt fjölskyldu sinni, aðstöðarmönnum og jafnvel sjálfum sér sakaruppgjöf. Annar segir að þetta spjall hans við lögmenn sína hafi verið almenns eðlis og sá þriðji segir að forsetinn hafi einfaldlega viljað vita meira um valdasvið sitt.
Bandaríkin Donald Trump Rússarannsóknin Mest lesið Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira