Telur borgina hafa orðið af 200 milljónum Kristinn Ingi Jónsson skrifar 25. júlí 2017 06:00 Lóðin þar sem Íslandshótel hyggst reisa hótel. vísir/andri marinó
Borgarráðsfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina telur að Reykjavíkurborg hafi tapað tæplega 200 milljónum króna á því að bíða ekki með að selja fasteignirnar við Laugaveg 4 og 6 og Skólavörðustíg 1a. Fulltrúar meirihluta borgarráðs vísa því á bug. Borgarráð samþykkti í síðustu viku að selja fasteignina að Vonarstræti 4, ásamt byggingarrétti, til Íslandshótela, en vonir standa til að fasteignin verði hluti af nýju hóteli keðjunnar. Bílastæðasjóður er nú þar til húsa. Var kaupverðið 399,3 milljónir króna. Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, borgarráðsfulltrúi Framsóknar, segir að í júlí 2014 hafi borgin selt fasteignir á Laugavegi 4-6 og Skólavörðustíg 2a á 365 milljónir króna. Borgarráðsfulltrúar flokksins hafi þá mótmælt sölunni og sagt verðið of lágt og tímasetninguna ranga, enda væru fyrirséðar miklar hækkanir á fasteignaverði. Sveinbjörg segir að miðað við verðmatið á Vonarstræti 4 hefði borgin getað fengið 551 milljón króna fyrir fasteignirnar á Laugavegi 4-6 og Skólavörðustíg 2a. „Tapið af því að fara ekki að tillögu Framsóknar og flugvallarvina um að bíða með sölu á eignunum er því ekki óvarlega áætlað tæplega 200 milljónir,“ segir hún. Borgarráðsfulltrúar meirihlutans bókuðu á fundinum að byggingarréttur fyrir bakhús og kjallara, þar sem hýsa ætti verslun við Laugaveg, og byggingarréttur fyrir hótel á besta stað við Vonarstræti væri ekki sambærilegt. Fasteignirnar á Laugavegi hefðu verið auglýstar á vegum fasteignasala og í kjölfarið seldar hæstbjóðanda.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Innkalla þurrmjólkina eftir allt saman Neytendur Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Ætluðu að nýta greidd sæti en fengu ekki Neytendur Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira