Kaupfélag Skagfirðinga kaupir í Árvakri Kristinn Ingi Jónsson skrifar 25. júlí 2017 06:00 Eyþór Arnaldsson og Guðbjörg Matthíasdóttir eiga stærstu hlutina í Árvakri
Félagið Íslenskar sjávarafurðir, sem er í eigu Kaupfélags Skagfirðinga, hefur bætt við hlut sinn í Árvakri, útgefanda Morgunblaðsins. Félagið á nú 14,15 prósenta hlut í einkahlutafélaginu Þórsmörk, sem er eigandi Árvakurs, en átti áður rúmlega níu prósenta hlut. Félagið er þriðji stærsti eigandi Þórsmerkur. Þá hefur hlutur Ramses II, félags í eigu Eyþórs Arnalds, fjárfestis, í Þórsmörk minnkað úr 26,62 prósentum í 22,87 prósent. Hlutafé Árvakurs var aukið um 200 milljónir króna í sumar, en aðeins núverandi eigendur tóku þátt í hlutafjáraukningunni. Var það Kaupfélag Skagfirðinga sem lagði Árvakri til hvað mest fjármagn, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Félag Eyþórs er stærsti einstaki eigandi Þórsmerkur, en félagið fór inn í hluthafahópinn í apríl þegar það keypti eignarhluti útgerðarfélaganna Samherja, Síldarvinnslunnar og Vísis í Þórsmörk. Þá hefur félagið Laugarholt, í eigu hjónanna Þorgeirs Baldurssonar, fyrrverandi forstjóra prentsmiðjunnar Odda, og Rögnu Maríu Gunnarsdóttur, selt hlut sinn í Þórsmörk. Félagið Hlynur A, í eigu Guðbjargar Matthíasdóttur, útgerðarkonu í Vestmannaeyjum, er næststærsti eigandi Þórsmerkur með 16,5 prósenta hlut og þá á Ísfélag Vestmannaeyja 13,4 prósenta hlut. Tæplega fimmtíu milljóna króna tap varð af rekstri Árvakurs í fyrra, samanborið við 164 milljóna tap 2015. Tekjur félagsins jukust um níu prósent á árinu og námu 3,6 milljörðum króna, miðað við 3,1 milljarð árið 2015, en gjöld jukust um sex prósent.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Ákvörðunin kom á óvart Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að ógilda samruna smásölufélagsins Haga og lyfsölufélagsins Lyfju hafi komið á óvart. Hann segir að íslensk fyrirtæki verði að geta brugðist við aukinni samkeppni. Sameining sé ein leið til að ná fram hagræðingu. 25. júlí 2017 06:00 Mest lesið Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Innkalla þurrmjólkina eftir allt saman Neytendur Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Ætluðu að nýta greidd sæti en fengu ekki Neytendur Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira
Ákvörðunin kom á óvart Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að ógilda samruna smásölufélagsins Haga og lyfsölufélagsins Lyfju hafi komið á óvart. Hann segir að íslensk fyrirtæki verði að geta brugðist við aukinni samkeppni. Sameining sé ein leið til að ná fram hagræðingu. 25. júlí 2017 06:00