Óútreiknanlegt vatn þreytir Álftnesinga Jóhann Óli Eiðsson skrifar 9. júní 2017 07:00 Gunnar Freyr Steinsson með garðslönguna, sem stundum er alveg jafn kraftlaus og sturtan á heimili hans á Álftanesi. Vísir/Anton Brink
Íbúar Álftaness eru langþreyttir á lágum kaldavatnsþrýstingi á svæðinu. Vandamálið hefur komið upp reglulega undanfarin ár. Málið er komið í ferli. Í Facebook-hópnum Íbúar Álftaness skýtur málið reglulega upp kollinum. Má þar meðal annars finna innlegg frá því í júní í fyrra þar sem rætt er um málið og öðru hvoru síðan þá. Hjá sumum renni kalda vatnið nánast ekki, hjá öðrum kólnar það varla og aðrir heyra einhver óhljóð í rörunum. Enn aðrir tala um að ekki sé hægt að fara í sturtu nema á ákveðnum tímum sólarhringsins. „Þetta birtist með mjög mismunandi hætti,“ segir Huginn Freyr Þorsteinsson, íbúi á Álftanesi. „Maður hélt fyrst að þetta væri bundið við mann sjálfan og manns eigið hús en síðan heyrði maður fleiri tala um þetta. Vandamálið virðist oft vera meira um helgar þegar notkun er mikil,“ segir Huginn. Það virðist ekki vera svo að íbúar nessins séu Indriðar upp til hópa sem heyri endalaust bank í ofnunum. Gunnar Freyr Steinsson hefur verið í sambandi við Veitur vegna málsins. „Við fluttum hingað í lok ágúst og tókum strax eftir því að sturtan var leiðinleg. Vatnið var ýmist alltof kalt eða alltof heitt, svo heitt að það lá við bruna, til skiptis,“ segir Gunnar. Þar sem blöndunartækin í húsi hans voru fjörgömul brá hann á það ráð að skipta þeim út í von um að vesenið yrði fyrir bí. „Þetta skánaði við nýju tækin en við finnum fyrir þessu reglulega. Sérstaklega þegar það er heitt í veðri.“ Gunnar og kona hans voru í sambandi við Veitur en fyrirtækið sendi mann til þeirra fyrir nokkrum vikum og skoðaði hann húsið. Gunnar benti honum einnig á umræðuna í hópnum og fékk þá þær upplýsingar að svona ætti þetta ekki að vera. „Veitur hafa fundið fyrir sveiflum í þrýstingi og telja að það megi rekja til leka í kerfinu. Það er unnið að greiningu og lekaleit,“ segir Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, upplýsingafulltrúi hjá Veitum. Hún bætir því við að sú vinna geti þýtt í náinni framtíð tímabundið kaldavatnsleysi á ákveðnum stöðum. Það yrði auglýst sérstaklega þegar þar að kemur. „Það er búið að setja upp bráðabirgðasírita á svæðinu til að fylgjast með. Við biðjum íbúa líka um að láta vita ef það er eitthvað að sem má ekki rekja til skorts á ofankomu,“ segir Ólöf.Mynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Sjá meira