Stjórn yfir Landspítala? Sigríður Kristinsdóttir skrifar 31. maí 2017 07:00 Nichole Leigh Mosty, þingmaður Bjartrar framtíðar og formaður velferðarnefndar Alþingis, setti í umræðum um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar, 24. maí síðastliðinn, fram þá hugmynd sína, að setja ætti pólitíska stjórn yfir Landspítalann og bætti við ákaflega dónalegum ummælum um forstjóra spítalans. Hún sagði: „Ég ætla að vera alveg hreinskilin, það er ég sem hef verið að hlaupa hérna um þinghúsið að leggja fram hugmyndir um stjórn yfir spítalann. Ekki á pólitískum forsendum heldur faglegum, að við setjum fagaðila í reksturinn svo að forstjóri spítalans þurfi ekki að vera í baráttu, í pólitískri baráttu á fundum eftir pening, að hann þurfi ekki að koma hérna niður í þinghús fimm mínútum í afgreiðslu fjárlaga til þess að betla um pening.“ Hér er margt að athuga. Til dæmis má benda á að Alþingishúsið hentar ekki mjög vel til að hlaupa um, frekar að hægt sé að hlaupa um í Costco sem þingkonan þekkar vafalaust vel frá heimalandi sínu. Minna má á að yfir Landspítalanum var sérstök stjórn fyrr á árum, það var sjö manna stjórn. Fjórir kosnir af Alþingi, tvo völdu starfsmenn spítalans og ráðherra skipaði svo formann. Þegar Borgarspítalinn og Landspítalinn voru sameinaðir um aldamótin var umrædd stjórn lögð af. Hefur Nichole kynnt sér hvernig þessi stjórn vann og hvernig hún lét til sín taka? Sá þessi stjórn um að sækja fjárveitingar til Alþingis? Enn eru í fullu fjöri nokkrir þeirra sem sátu síðast í umræddri stjórn og hæg heimatökin að hafa samband við þá aðila til að afla sér þekkingar um málið.Uggvænlegt Það er uggvænlegt ef þingmaðurinn hefur í huga það fyrirkomulag á slíkri stjórn að velja í hana „fagaðila“ sem eru kunnir rekstri fyrirtækja, eins og tíðkast mjög í Bandaríkjunum, þ.e. fá í stjórnina forstjóra sem eru aldir upp í fyrirtækjum þar sem markmiðið er að hámarka gróðann. Gamlir og ungir forstjórar hafa yfirleitt enga þekkingu á rekstri sjúkrahúsa og vita mjög lítið um þá starfsemi sem þar fer fram. Þannig að ekki er líklegt að slíkir „fagaðilar“ leggi margt gott til málanna. Raunar er á hreinu hvernig slík stjórn yrði skipuð, hún kæmi að meiri hluta frá ríkisstjórn á hverjum tíma, yrði pólitískt skipuð þótt vera kynni að hún væri „fagleg“ á yfirborðinu. Tilgangurinn með tillögunni er augljós. Núverandi ríkisstjórn stefnir að því að þrengja að Landspítalanum en styrkja einkavædda heilbrigðisþjónustu. Liður í því er að hemja forstjóra spítalans svo hann sé ekki sífellt niðri á Alþingi til að betla peninga, eins og þingkonan orðar svo smekklega. Eða getur hún ekki dulið fyrirlitningu sína á umræddum manni? Það er einkennileg aðferð að viðra ekki slíkar hugmyndir fyrst við forstjóra spítalans og forráðamenn hans, að minnsta kosti að kynna sér hvað þeim finnist. Margir geta haft skoðanir á rekstri spítalans, bæði vel og illa ígrundaðar, en samt sem áður þá er kunnáttan og þekkingin í höndum þeirra sem halda þar um stjórnvölinn.Ættum ekki að ameríkanísera heilbrigðisþjónustuna Við ættum ekki að ameríkanísera heilbrigðisþjónustuna og ég mun berjast gegn því eins lengi og ég hef krafta til og reyna að fá fólk með mér, enda er ástandið í heilbrigðismálum í Bandaríkjunum ekki gæfulegt, að minnsta kosti ekki fyrir þá sem eiga lítið af peningum, og varla batnar það í tíð núverandi forseta þar. Ég byrjaði að vinna á Landspítalanum 1968 og hef unnið þar mestalla starfsævina og fylgst með peningaleysi þar á bæ. Það er ekki sómasamlegt þegar kemur fyrir að fötur standi á göngunum til að mæta húsleka. Ég þekki spítalann vel, bæði sem starfsmaður og notandi, vann þar rúm 40 ár og þykir mjög vænt um vinnustaðinn. Hef fengið þar mjög góða þjónustu og starfsfólkið sýnt mér hlýju og umhyggju. Það þarf bæði að huga að ytra útliti og innri starfsemi og þar þarf Alþingi heldur betur að taka sig á, bæði með að bæta tækjakost og viðhald, en það hafa stjórnvöld vanrækt mjög undanfarin ár. Nichole er vinsamlega beðin að kynna sér mannkosti fólks áður en hún fer að núa því um nasir að það komi á fund Alþingis að betla og sníkja fyrir starfsemi sína. Vil að endingu minna á að þjóðin á Landspítalann en ekki formaður velferðarnefndar Alþingis, sem hleypur fram og til baka, að eigin sögn, en talar ekki við þá sem best þekkja til. Væri ekki betra að hlaupa minna en hlusta á forstjóra spítalans þegar hann rekur fyrir velferðarnefnd hverjar þarfir spítalans eru.Höfundur er sjúkraliði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið X-R mun standa vörð um innviði og arðbærar eignir Reykvíkinga! Linda Jónsdóttir Skoðun Ísland í klóm myglunnar – Kerfisbundið lögleysi og stjórnsýslulegt gáleysi Sigurður Sigurðsson Skoðun Náttúruverndin er munaðarlaus í Hafnarfirði Anna Sigríður Sigurðardóttir,Davíð Arnar Stefánsson Skoðun Dúllur okkar daga Hallgrímur Helgason Skoðun Andstaðan við að tryggja að neytendur fái lækkun við dælu Þórður Snær Júlíusson Skoðun Vika6 – Vilt þú læra að stunda gott kynlíf? Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson Skoðun Höfum við ekki nóg við peningana að gera? Þollý Rósmundsdóttir Skoðun Stöðu minnar vegna Kristín Helga Gunnarsdóttir Skoðun Þegar við lærum að þóknast – og gleymum sjálfum okkur Kristín Magdalena Ágústsdóttir Skoðun Þegar öldrun birtist okkur eins og hún er Berglind Indriðadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Fjarðarheiðargöng og lenging flugbrautar á Egilsstöðum eru þjóðaröryggismál Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Andstaðan við að tryggja að neytendur fái lækkun við dælu Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hafnarfjörður í sókn með skýra sýn og hlýja forystu Alexander M Árnason skrifar Skoðun Þegar við lærum að þóknast – og gleymum sjálfum okkur Kristín Magdalena Ágústsdóttir skrifar Skoðun Ísland í klóm myglunnar – Kerfisbundið lögleysi og stjórnsýslulegt gáleysi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Náttúruverndin er munaðarlaus í Hafnarfirði Anna Sigríður Sigurðardóttir,Davíð Arnar Stefánsson skrifar Skoðun Íslenskt mállíkan – fullveldi eða útvistunarsamningur? Jón Guðnason,Hrafn Loftsson,Stefán Ólafsson,Kristinn R. Þórisson,Hannes Högni Vilhjálmsson,Henning Arnór Úlfarsson skrifar Skoðun Þegar öldrun birtist okkur eins og hún er Berglind Indriðadóttir skrifar Skoðun Klárum verkin fyrir börnin og íþróttafólkið okkar Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Hver borgar fyrir auknar strandveiðar? Björk Ingvarsdóttir,Mikael Rafn L. Steingrímsson skrifar Skoðun Ég skildi ekki Íslendinga fyrst Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Stöðu minnar vegna Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Enn eitt neyðarkall Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Dúllur okkar daga Hallgrímur Helgason skrifar Skoðun Staða Íslands í alþjóðakerfinu: Mikilvægi upplýstrar umræðu Auður Birna Stefánsdóttir,Tómas Joensen,Pia Hansson skrifar Skoðun Jarðgangnaáætlun - staðfesta eða stefnuleysi Sigurður Ragnarsson skrifar Skoðun „Þetta reddast“ og strategísk sýn á alþjóðamál Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Uxahryggir og Kaldidalur – lykill að öflugri Borgarbyggð og betri ferðaþjónustu á Íslandi Sigurður Guðmundsson skrifar Skoðun Vika6 – Vilt þú læra að stunda gott kynlíf? Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson skrifar Skoðun Að endurskilgreina velgengni: Frá auði og völdum til tengsla og velsældar Dóra Guðrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hafnarfjörður er að verða fullbyggður – hvað gerum við nú? Stefán Már Víðisson skrifar Skoðun Hafnfirskur evrópuvöllur? Já takk! Árni Stefán Guðjónsson skrifar Skoðun Áminningarskyldan og þjónusta hins opinbera Kristján Páll Kolka Leifsson skrifar Skoðun 36 stunda vinnuvika, leikskólar og komandi kjarasamningar Guðmundur D. Haraldsson skrifar Skoðun Fyrir fólkið Jónas Þór Birgisson skrifar Skoðun Börnin okkar eiga betra skilið en gjörunninn mat Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir,Heiðbjört Ósk Ófeigsdóttir skrifar Skoðun X-R mun standa vörð um innviði og arðbærar eignir Reykvíkinga! Linda Jónsdóttir skrifar Skoðun Bílastæði og borgaraleg óhlýðni Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Af stjórnarháttum eins manns í Skeiða- og Gnúpverjahreppi – Yfirgangur og atlaga að lýðræði Gerður Stefánsdóttir skrifar Skoðun Viltu fleiri bílastæði í miðbæinn? Eyþór Máni Steinarsson skrifar Sjá meira
Ísland í klóm myglunnar – Kerfisbundið lögleysi og stjórnsýslulegt gáleysi Sigurður Sigurðsson Skoðun
Náttúruverndin er munaðarlaus í Hafnarfirði Anna Sigríður Sigurðardóttir,Davíð Arnar Stefánsson Skoðun
Skoðun Fjarðarheiðargöng og lenging flugbrautar á Egilsstöðum eru þjóðaröryggismál Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Ísland í klóm myglunnar – Kerfisbundið lögleysi og stjórnsýslulegt gáleysi Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Náttúruverndin er munaðarlaus í Hafnarfirði Anna Sigríður Sigurðardóttir,Davíð Arnar Stefánsson skrifar
Skoðun Íslenskt mállíkan – fullveldi eða útvistunarsamningur? Jón Guðnason,Hrafn Loftsson,Stefán Ólafsson,Kristinn R. Þórisson,Hannes Högni Vilhjálmsson,Henning Arnór Úlfarsson skrifar
Skoðun Hver borgar fyrir auknar strandveiðar? Björk Ingvarsdóttir,Mikael Rafn L. Steingrímsson skrifar
Skoðun Staða Íslands í alþjóðakerfinu: Mikilvægi upplýstrar umræðu Auður Birna Stefánsdóttir,Tómas Joensen,Pia Hansson skrifar
Skoðun Uxahryggir og Kaldidalur – lykill að öflugri Borgarbyggð og betri ferðaþjónustu á Íslandi Sigurður Guðmundsson skrifar
Skoðun Að endurskilgreina velgengni: Frá auði og völdum til tengsla og velsældar Dóra Guðrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Börnin okkar eiga betra skilið en gjörunninn mat Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir,Heiðbjört Ósk Ófeigsdóttir skrifar
Skoðun Af stjórnarháttum eins manns í Skeiða- og Gnúpverjahreppi – Yfirgangur og atlaga að lýðræði Gerður Stefánsdóttir skrifar
Ísland í klóm myglunnar – Kerfisbundið lögleysi og stjórnsýslulegt gáleysi Sigurður Sigurðsson Skoðun
Náttúruverndin er munaðarlaus í Hafnarfirði Anna Sigríður Sigurðardóttir,Davíð Arnar Stefánsson Skoðun