Vitni segja bílstjórann hafa ætlað sér að keyra á vegfarendur Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 18. maí 2017 23:30 Frá vettvangi. Vísir/Getty
Vegfarendur sem urðu vitni að því þegar ökumaður ók bíl sínum á gangandi vegfarendur á Times Square í New York í dag segja að augljóst sé að um ætlunarverk hafi verið að ræða. Þetta kemur fram í frétt Reuters þar sem rætt er við fjölmörg vitni. Eru þau öll sammála um að ökumaðurinn hafi ætlað sér að keyra á vegfarendur. „Þetta var viljarverk,“ segir Cheryl Howard sem var á ferð í grennd við atvikið. Dóttir hennar slasaðist á handlegg í hamaganginum. „Hann var að miða á eins mikið af fólki og hann mögulega gat. Þetta var blóðugt og óhugnanlegt,“ sagði vitni að nafni Andrew. Átján ára gömul kona lést er hún varð fyrir bílnum og minnst 22 slösuðust og skildi bíllinn eftir sig mikla eyðileggingarslóð. Vitni lýsa því hvernig bílnum var ekið upp á gangstétt við Times Square, sem er afar fjölfarinn ferðamannastaður í New York, og var ekið á allt sem í vegi hans varð. Í frétt Reuters segir einnig að tvær konur hafi verið á ferð með barnavagna á sama stað og bíllinn fór upp á gangstéttina aðeins örfáum sekúndum áður en það gerðist. Bílstjórinn var handtekinn á vettvangi en lögregla segir að ekkert bendi til þess að um hryðjuverk hafi verið að ræða.
Tengdar fréttir Bíl ekið á gangandi vegfarendur á Times Square Minnst einn er látinn en atvikið er ekki talið vera hryðjuverk. 18. maí 2017 16:12 Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Innlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Fleiri fréttir Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Sjá meira
Bíl ekið á gangandi vegfarendur á Times Square Minnst einn er látinn en atvikið er ekki talið vera hryðjuverk. 18. maí 2017 16:12