Taprekstur hjá HSÍ og sambandið í skuld | Guðmundur sjálfkjörinn á ný Kristinn Páll Teitsson skrifar 22. apríl 2017 14:19 Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ. Vísir/Valli
Í dag fór fram 60. ársþing Handknattleikssambands Íslands en engar stórvægilegar breytingar áttu sér stað. Þá var Guðmundur B. Ólafsson sjálfkjörinn formaður á nýjan leik. Kemur þetta fram í fréttatilkynningu sem HSÍ sendi frá sér nú fyrir stuttu. Er þetta í annað skiptið sem Guðmundur er sjálfkjörinn í embættið en hann tók við því árið 2013 eftir að hafa verið varaformaður áður fyrr. Var greint frá því að velta sambandsins á síðasta ári hafi verið rúmlega tvö hundruð milljónir, 206.216.217 en félagið hafi verið rekið í tapi upp á 9.412.283. Þýðir það að sambandið er í skuld eftir árið en eigið fé sambandsins er neikvætt um 2.658.554 að árinu loknu. Davíð B. Gíslason, Hjalti Þór Hreinsson, Hjördís Guðmundsdóttir og Þorbergur Aðalsteinsson voru kosin sem stjórnarmenn sambandsins til tveggja ára. Snýr Þorbergur því aftur í stjórn HSÍ eftir níu ára fjarveru en hann fékk einu atkvæði meira en Ágúst Jóhannsson. Einnig voru kosnir sem varamenn þeir Gunnar Gíslason, Hannes Karlsson og Magnús Karl Daníelsson til eins árs. Þá lét Vigfús Þorsteinsson af störfum í stjórn HSÍ og var honum þakkað fyrir störfin undanfarin ár.
Íslenski handboltinn Mest lesið Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Íslenski boltinn Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Fótbolti Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ Handbolti Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Fótbolti „Mættum til leiks í seinni hálfleik“ Sport Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Fótbolti Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum Fótbolti FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Handbolti Fleiri fréttir Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum Sjá meira