Landsig við jarðhitavirkjanir vekur athygli Svavar Hávarðsson skrifar 10. apríl 2017 07:00 Þrjú teymi mældu 150 punkta auk mæligagna frá um 100 föstum mælistöðvum. Gæslan aðstoðaði þar sem þess þurfti með. Mynd/Landmælingar Íslands
Endurmæling Landmælinga Íslands (LÍ) sumarið 2016 á landshnitakerfi Íslands leiddi í ljós ummerki eldgosa og jarðskjálfta, en jafnframt eru áhrif af landnýtingu manna eins og í kringum jarðhitavirkjanir eftirtektarverð. Landshnitakerfið hefur verið mælt tvisvar áður með GPS-tækni, fyrst árið 1993 og svo aftur árið 2004, en frá verkefninu segir í nýjustu ársskýrslu LÍ. Guðmundur Valsson, mælingaverkfræðingur hjá LÍ, bendir á að frumniðurstöður mælinganna lágu fyrir í lok desember; landið rekur í sundur með mjög jöfnum hraða eða um einn sentimetra á ári í hvora átt – nokkuð sem lengi hefur verið vitað. Landshnitakerfið hefur verið mælt tvisvar áður með GPS-tækni, fyrst árið 1993 og svo aftur árið 2004 og frá síðustu mælingu má sjá hvar mest hefur gengið á í náttúru Íslands. Hreyfingar í kringum upptök Suðurlandsskjálftanna 2008 eru til dæmis allt aðrar en víðast hvar annars staðar á landinu.Guðmundur Valsson„Þetta voru 40 sentimetrar sem gliðnunin varð í skjálftunum á milli Selfoss og Hveragerðis,“ segir Guðmundur en hreyfingar norðan Vatnajökuls skera sig nokkuð úr við mælingarnar nú, en þar má merkja áhrif eldgossins í Holuhrauni 2014-2015. Má nefna gliðnun upp á 60 sentimetra við Kverkfjöll en talsverðar hæðarbreytingar hafa einnig orðið á þessu 12 ára tímabili á milli mælinga. Þar má m.a. nefna ris á Vatnajökli og umhverfis hann og má leiða líkur að því að þar séu að koma fram áhrif þynningar jökulsins en einnig aukinnar kvikumyndunar undir honum. Mest mældist risið í Jökulheimum eða um 40 sentimetrar. Til samanburðar var risið þar á tímabilinu 1993 til 2004 helmingi minna. „Það sem er merkilegt er að það virðist vera mikið landris í og við Vatnajökul almennt – sést það greinilega við Svínafell í Öræfum og nálægt Hala í Suðursveit, svo dæmi sé tekið,“ segir Guðmundur sem segir jafnframt áhugavert að skoða mikið landsig í kringum helstu jarðhitavirkjanir landsins – bæði við Hellisheiðarvirkjun og á Reykjanesi – en þar nemur sigið einum sentimetra á ári, eða 18 sentimetra síðan 2004 þegar það mældist mest. „Ég skoðaði mælingar sem Orkustofnun gerði í kringum árið 2000 og þá var ekki þetta sig, sýndist mér. Það verður athyglisvert hvað gerist í Þeistareykjum eftir að vinnsla hefst þar, við erum með mælipunkt þar nálægt svo það er nærtækt.“ Hæðarbreytingar meðfram ströndinni vöktu einnig athygli vísindamanna, þar sem þær geta ýmist unnið með eða gegn áhrifum hækkandi sjávarborðs, en þær eru greinilegastar á Reykjanesi.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Komið að ögurstundu Erlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Innlent Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Innlent Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Erlent Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Innlent Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Innlent Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni Erlent Fleiri fréttir Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sólheimar segja upp þjónustusamningnum „Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra“ Kristrún kynnir planið fyrir sveitarstjórnarkosningarnar Barátta við verðbólgu, eltihrellir og brugðist við breyttri Reynisfjöru Engir glæpir á bak við aukið sírenuvæl í borginni Bæjarfulltrúa í Grindavík misboðið: „Sleppið af okkur klónum“ Gabríel Douane í síbrotagæslu: Einn handtekinna vegna líkamsárásar í mars Bæjarstjóri Kópavogs lýsir yfir sárum vonbrigðum með efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar Börn flytji ekki til Grindavíkur á meðan óvissa varir Mikilvægt að tala saman, líka karlar Sjá meira