Útiloka mengandi iðnað í Helguvík Svavar Hávarðsson skrifar 6. apríl 2017 06:00 Helgi Þórhallsson, forstjóri United Silicon, Sigrún Ágústsdóttir, sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun, Björt Ólafsdóttir, umhverfisráðherra, Friðjón Einarsson, formaður bæjarstjórnar í Reykjanesbæ, og Þórólfur J. Dagsson, formaður Samtaka íbúa á Reykjanesi, sátu fyrir svörum umhverfisnefndar í gær. vísir/ernir
Reykjanesbær hefur breytt aðalskipulagi sínu sem útilokar frekari uppbyggingu mengandi iðnaðarstarfsemi en þegar hefur verið samið um í Helguvík. Búnaður kísilvers United Silicon á staðnum stendur ekki undir því að hreinsa mengun frá verinu og verður skipt út. Þetta kom meðal annars fram á fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í gær. Komu fyrir nefndina umhverfisráðherra, fulltrúar bæjarstjórnar Reykjanesbæjar og íbúa, forstjóri United Silicon og fulltrúi Umhverfisstofnunar. Friðjón Einarsson, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar, segir við Fréttablaðið að ákvörðun bæjaryfirvalda, sem var stimpluð á þriðjudagskvöld, sé til vitnis um nýja hugsun í uppbyggingu Reykjanesbæjar til framtíðar. Eins og staðan er nú eru það aðeins kísilver Thorsil og álver Century Aluminum (CA) sem hafa möguleika á að reka sinn iðnað í Helguvík til viðbótar við United Silicon – en um bæði verkefnin má segja að ekkert sé í hendi um rekstur. Álvershugmyndir móðurfélags Norðuráls virðast reyndar úr sögunni eftir að CA afskrifaði verkefnið í bókum sínum. Landvernd, Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands, og íbúar í Reykjanesbæ kærðu starfsleyfisúrskurð Umhverfisstofnunar í mars.Friðjón Einarsson„Þetta þýðir að við bönnum mengandi iðnað í Helguvík til framtíðar. Svona ákvörðun er ekki afturvirk en við höfum neitunarvald gagnvart nýjum aðilum,“ segir Friðjón spurður um ákvörðun bæjarstjórnar. „Þetta er risaákvörðun og var í samráði við íbúa. Þetta er til marks um breytt samfélag og breytt viðmið um hvernig við viljum byggja bæinn okkar upp. Þetta er tímamótaákvörðun, tel ég,“ segir Friðjón. Höfnin í Helguvík hefur verið byggð upp sem stórskipahöfn fyrir þungaiðnað, byggt á fyrstu hugmyndum frá 1994. Til þess verks hefur verið varið níu milljörðum króna sem lítið sem ekkert hefur nýst. Friðjón segir að höfnin muni nýtast þrátt fyrir ákvörðunina. Önnur starfsemi, iðnaður og ferðaþjónusta muni njóta þess. Hins vegar hefur ekkert verið ákveðið um hvers konar starfsemi önnur en mengandi iðnaður fær inni í Helguvík. „Við munum styðja við grænan iðnað eins og við getum,“ segir Friðjón og bætir við að ef United Silicon nái ekki að uppfylla þau ströngu skilyrði sem um fyrirtækið gilda, þá „auðvitað lokar þessi verksmiðja“.Þungum áhyggjum lýst á fundinumSigrún Ágústsdóttir, sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun, sagði eftirlit með United Silicon vera fordæmalaust. Farið hefði verið í endurteknar eftirlitsferðir þar sem 17 frávik frá starfsleyfi hafi verið greind. Fyrir dyrum sé sérstök verkfræðileg úttekt á verksmiðjunni; í fyrsta skipti sem stofnunin telur ástæðu til slíkrar aðgerðar. „Lyktin frá kísilverinu kom á óvart og þar höfum við áhyggjur af því að það séu að losna efni sem ekki var gert ráð fyrir í mati á umhverfisáhrifum og ekki gerð grein fyrir,“ sagði Sigrún og bætti við að litið sé til þess, sé ástæða til, að beita valdheimildum eins og að loka verksmiðjunni eða svipta hana starfsleyfi. Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, sagði ítrekað á fundinum að henni hugnaðist engan veginn uppbygging stóriðju hvort sem það væri í Helguvík eða annars staðar á Íslandi. Hún sagðist gjalda mikinn varhug við uppbyggingu kísilvera því komið hafi í ljós, öfugt við það sem áður var haldið fram, að mengunin væri óásættanleg. „En ég er bundin ákvörðunum fyrri ríkisstjórna. En það sem ég get gert er að ítrustu kröfur séu uppfylltar hvað varðar starfsemi sem mengar – það á við þessa uppbyggingu og aðra hér á landi.“ Björt sagði til skoðunar að stóriðjan yrði skikkuð til að koma til móts við loftslagsmarkmið Íslands; grænir hvatar kæmu til greina eins og binding með skógrækt. Helgi Þórhallsson, forstjóri United Silicon á Íslandi, sagði allt hafa farið úrskeiðis í starfsemi verksmiðjunnar, sem á annað borð gat gert það. Hann sagði vandamálið ekki vera reykhreinsibúnaðinn sjálfan heldur lofthreinsun í húsinu sjálfu; reyksía sem hreinsa á loftið sé of lítil og valdi ekki hreinsun. Henni verður skipt út, eftir ráðleggingum norskra sérfræðinga. Það geti tekið allt að því fimm mánuði að fá hana og setja upp, en um mikla fjárfestingu sé að ræða. „Það er rétt að það hefur verið erfitt að fá tölvubúnaðinn til að virka. Þetta er miklu flóknara í dag en í gamla daga þegar ég var að stýra verksmiðjum þar sem var eifaldari stýribúnaður. Það tekur lengri tíma að láta allt virka saman, en þetta er allt leysanlegt,“ sagði Helgi. Þórólfur J. Dagsson, formaður samtaka íbúa á Reykjanesi, sagði stöðuna sem upp er komin vera óþolandi. „Hvernig dettur fólki í hug að taka svona iðnað og setja hann niður svo nálægt byggð? Það er ekki hægt að bjóða okkur bæjarbúum upp á þetta – við erum engin tilraunadýr,“ sagði Þórólfur og vék sérstaklega að þeirri staðreynd að verksmiðja United Silicon væri aðeins rúmum kílómetra frá leik- og grunnskólum í Reykjanesbæ. Ef aðlögun að rekstri kísilvers á Íslandi hafi verið nauðsynleg, eins og talað sé um, þá hefði kannski verið þjóðráð að gera það í upphafi á iðnaðarsvæði í góðri fjarlægt frá byggð, sagði Þórólfur og spurði fulltrúa Umhverfisstofnunar um hvaða efni gætu verið í reyknum sem berst yfir byggðina og séu ekki mæld; hvort eiturefnið díoxín gæti verið þeirra á meðal.
Birtist í Fréttablaðinu United Silicon Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Innlent „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Innlent Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Innlent Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjá meira